Back to results

Bifröst University

Áfallastjórnun vegna COVID-19

Abstract

dc:description.abstract

Áfallastjórnun snýr að forvörnum, viðbúnaði, viðbrögðum og endurreisn vegna áfalla. Í þessari rannsókn er áfallastjórnun greind í fámennu sveitarfélagi, Mýrdalshreppi, vegna þess samfélagslega áfalls sem fólst í COVID-19 heimsfaraldrinum. Í úttekt Byggðastofnunar sem unnin var fyrir stjórnvöld var Mýrdalshreppur eitt þeirra sveitarfélaga sem varð fyrir hvað mestum efnahagslegum samdrætti vegna faraldursins. Endurreisnarferli vegna áfalla hefur lítið verið rannsakað á Íslandi en í þessari rannsókn eru áhrif stuðningsaðgerða stjórnvalda til atvinnulífsins meðal þess sem skoðað er. Þannig er rannsóknin mikilvægt innlegg í endurreisnarverkfærakistu framtíðarinnar, ásamt öðrum lærdómi sem hún skilar til sveitarfélaga vegna hugsanlegra áfalla. Viðbúnaður og viðbrögð í Mýrdalshreppi eru skoðuð ítarlega í verkefninu þar sem beitt var eigindlegri rannsókn. Viðtöl voru tekin við 14 viðbragðsaðila og heimamenn til að leita svara við rannsóknarspurningunum. Áfallastjórnun mótar hinn fræðilega grunn sem og greiningaramma rannsóknar. Megin niðurstöður voru afgerandi á þann hátt að stuðningur stjórnvalda hefði haft mikla þýðingu, bæði aðgerðir á landsvísu og sértæki stuðningurinn sem Mýrdalshreppi var veittur. Faraldurinn var mikil áskorun fyrir atvinnulífið í sveitarfélaginu en sveitarstjórn tók þá ákvörðun strax við upphaf hans að gefa í hvað framkvæmdir varðaði, sem varð heilladrjúgt. Sýnilegar framkvæmdir höfðu jákvæð áhrif og upplifðu íbúar sértækan stuðning sem viðurkenningu á því að þeirra staða væri sérstaklega erfið. Samstaða íbúa var mikil en áskoranir vegna mikillar íbúaþróunar eru verulegar, til framtíðar litið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hugrún Fjóla Hannesdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43536
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43536

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hugrún Fjóla Hannesdóttir 1974-. Áfallastjórnun vegna COVID-19. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43536