Back to results

Bifröst University

Hver er framtíð verslunar á Íslandi með tilliti til hraðari tækniframfara og aukinnar netverslunar?

Abstract

dc:description.abstract

Mikil aukning hefur verið á netverslunum fyrirtækja á Íslandi á síðast liðnum árum og má því segja að fyrirtæki eru í stöðugri samkeppni að halda í við samkeppnisaðila hvað varðar vöxt og tækniframfarir. Netverslun er þæginleg lausn fyrir neytendur sem eru að leita eftir ákveðinni vöru og getur auðveldað ákvarðanartöku varðandi vörukaupin. Því keppast fyrirtæki við það að viðhalda trausti og styrkja sína stöðu á markaði í huga neytenda. Rannsóknarspurningin sem höfundar leitast eftir að fá svar við í gegnum vinnslu verkefnisins var: „Hver er framtíð verslunar á Íslandi m.t.t. hraðari tækniframfara og og aukinnar netverslunar?“ Farið er yfir þá kafla fræðinnar sem tengir neytendur við verslanir og endanleg kaup. Þar er farið yfir skilgreiningar á hugtökunum netverslarnir, tegundir netverslanna, neytendahegðun og kauphegðun. Framkvæmd var megindleg og eiginleg rannsóknaraðferð þar sem send var út spurningakönnun og viðtöl tekin. Spurningakönnunin var send út á samfélagsmiðlinum Facebook og fengust alls 309 svör sem unnin vöru í forritinu Microsoft Excel. Viðtöl voru tekin við fjögur fyrirtæki með mismunandi verslanir þar sem spurt var um stöðu fyrirtækisins og fyrirhugaða framtíð og voru þau svo borin saman við fræðina. Helstu niðurstöður voru þær að stór aukning hefur verið á netverslun og fyrirtæki munu leggja aukna áherslu á netverslun til framtíðar. Netverlun mun hjálpa mikið til við að viðhalda hefðbundinni verslun þar sem neytendur leita oftar en ekki fyrst í netverslun fyrirtækis sem telst vera leitargluggi inní hina hefðbundnu verslun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Kristjana Sif Högnadóttir 1990-
  • Gylfi Már Ágústsson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43503
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43503

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristjana Sif Högnadóttir 1990-; Gylfi Már Ágústsson 1975-. Hver er framtíð verslunar á Íslandi með tilliti til hraðari tækniframfara og aukinnar netverslunar?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43503