Abstract
dc:description.abstractMeð aukinni og hraðari þróun í tölvutækni hafa skapast sífellt fleiri tækifæri til að láta tölvur vinna verkefni sem mannshöndin sá um áður. Mörg fyrirtæki eru farin að horfa til þessarar þróunar. Skrifstofuþjarkar eru í auknum mæli farnir að leysa verkefni sem þurfa ekki mannlega greind og geta fyrirtæki þá nýtt starfsfólk sitt til að vinna að virðisaukandi verkefnum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna skilvirkni og áreiðanleika þess að sjálfvirknivæða viðskiptaferil hjá íslensku fyrirtæki. Viðskiptaferillinn sem varð fyrir valinu er stofnun vörunúmera í viðskiptakerfi Innnes ehf. Fylgt var fjögurra þrepa ramma við innleiðingu sjálfvirknivæðingar, sem fólst m.a. í því að ítarlega var farið í umbótaferli á Excel-stofnskjali ásamt því að smíðaður var skrifstofuþjarkur í hugbúnaðinum UiPath Studio, sem flytur gögn úr stofnskjali yfir í viðskiptakerfið. Samanburður var gerður á starfsmönnum og skrifstofuþjarki út frá tímatöku og frávikaskráningum sem urðu til við framkvæmd viðskiptaferilsins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að ef Innnes ehf. nýtti sér skrifstofuþjarka til að framkvæma viðskiptaferilinn við stofnun vörunúmera gætu sparast rúmlega 42 klukkustundir af manntíma á ári miðað við núverandi fjölda nýskráðra vörunúmera. Á sama tíma væri hægt að fækka villufrávikum um 98% og bæta áreiðanleika stofngagna í viðskiptakerfinu til muna. Ýmsar áskoranir geta fylgt innleiðingu skrifstofuþjarka og þarf sérstaklega að huga að þekkingu og þjálfun þeirra sem koma að verkferlum sem á að sjálfvirknivæða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Kristín Jakobsdóttir 1981-
- Brynjar Óskarsson 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43500
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43500