Bifröst University
„Þotuliðið“ á Íslandi : kostir og gallar aukins fjölda ferðamanna sem til landsins koma með einkaþotum
Abstract
dc:description.abstractFlugsamgöngur landa á milli eru daglegt brauð og í hinum vestræna heimi er talsvert um ferðalög fólks. Flestir komast leiðar sinnar með almennu áætlunarflugi, en oftar en ekki styðjast þeir efnameiri við einkaþotur af ýmsum stærðum og gerðum. Nýverið hefur komið til umræðu hvort slíkur ferðamáti henti þeim tímum sem við lifum á; tímum loftslagsbreytinga og þess háttar. Rannsóknarritgerð þessi hafði það að markmiði að greina alla þá kosti og galla sem tengjast starfsemi og móttöku einkaþotuferðamanna hér á landi. Hálf-opin viðtöl urðu fyrir valinu sem rannsóknaraðferð, en einnig var stuðst við fræðilegar heimildir og töluleg gögn, meðal annars frá Hagstofu Íslands og Isavia. Greining leiddi í ljós að þættir sem máli skipta í umræðunni um einkaþotuferðamennsku eru meðal annars fjárhagslegur ávinningur, umhverfisáhrif, ímynd einkaþotna, tækniþróun, sköpun starfa og fleiri til. Það var þannig niðurstaða rannsakanda að fjárhagslegur ávinningur, sköpun starfa og tækniþróun væru einna stærstu kostir við komu þessara ferðamanna til landsins. Þá fólust gallarnir einna helst í neikvæðum umhverfisáhrifum, hávaða og almennu ónæði og neikvæðri ímynd einkaþotna. Tækifæri eru til staðar til að skapa betri sátt um slíka starfsemi og gera hana sjálfbærari, en mikilvægt er að opna umræðuna, hafa hana málefnalega og framkvæma að vel ígrunduðu máli.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Ingi Láruson 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43498
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43498