Bifröst University
Byrgja skal brunninn áður en barnið dettur ofan í hann : eru börn á aldrinum 15–17 ára að fá þá vernd sem löggjafanum ber að veita þeim gegn kynferðisbrotum?
Abstract
dc:description.abstractÚrdráttur Í ljósi mikillar umræðu í samfélaginu um mál barna og kynferðisbrota verður leitast við í þessari ritgerða að svara rannsóknarspurningunni sem er eftirfarandi: „Eru börn á aldrinum 15–17 ára að fá þá vernd sem löggjafanum ber að veita þeim gegn kynferðisbrotum? Fyrst og fremst mun umfjöllun þessarar greinagerðar beinast að þeim lagaákvæðum sem eiga við um málsmeðferð í kynferðisbrotamálum gegn börnum þ.e. almennum hegningarlögum nr. 19/1949, lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 og barnaverndarlögum nr. 80/2002. Fjallað verður um þær lagabreytingar sem átt hafa sér stað á almennum hegningarlögum og þá sérstaklega sem áttu sér stað með breytingarlögum nr. 61/2007. Litið verður til og athugað hvort að nægilegt tillit sé tekið til aðstæðna þar sem að báðir aðilar eru samþykkir á svipuðum aldri og á svipuðu þroskastigi. Tillaga að frumvarpi til laga um hækkun á kynræðisaldri úr 15 í 18 ára verður tekin til skoðunar, sem og lagabreytingin frá árinu 2007 um hækkun kynferðislegs lögaldurs úr 14 í 15 ára. Skoðað verður hvort að þessar breytingar séu of íþyngjandi við ákveðnar aðstæður, og hvort að lögin fari nógu langt við að vernda börn á aldrinum 15 – 18 ára. Farið verður yfir gildandi löggjöf og hvaða þýðingu hún hefur. Teknir verða til skoðunar dómar sem snúa að kynferðisbrotum gegn börnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Lovísa Tómasdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43482
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43482