Abstract
dc:description.abstractÍ hálfa öld hefur Ísland verið þátttakandi í alþjóðlegri þróunaraðstoð og er viðfangsefni þessarar ritgerðar þróunarsamvinnuverkefni landsins í Afríku en fjallað verður um þau út frá kenningum síð- og nútímanýlendustefnu. Þessar kenningar útskýra hvernig fátæk lönd heimsins verða fyrir efnahagslegum og pólitískum áhrifum af ríkum löndum og hvernig ástand þeirra varð eins og það er í dag. Þróunaraðstoð hefur verið gagnrýnd fyrir að vera form af nýlenduhyggju og leitast verður við að skoða hvort að Ísland falli undir þá gagnrýni. Í sögulegu samhengi hefur Ísland sérstaka stöðu innan þessara kenninga þar sem landið var nýlenda áður en það fékk sjálfstæði en með þátttöku sinni í t.a.m. þróunarsamvinnu hefur landið verið skilgreint sem þátttakandi í nýlendumeðvirkni. Farið verður yfir sögu nýlendustefnunnar og afleiðinga hennar, helstu kenningar sem tengjast stefnunni, sögu þróunarsamvinnu og gagnrýni á hana, til að setja viðfangsefnið í samhengi. Tekin voru viðtöl við núverandi og fyrrverandi starfsfólk íslenskra þróunarsamvinnuverkefna til að fá betri innsýn inn í verkefnin.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þorgeir Óli Þorsteinsson 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43476
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43476