Back to results

Bifröst University

Marshall-aðstoðin : áhrif fyrr og nú

Abstract

dc:description.abstract

Veraldarsagan er afar mikilvæg. Öllum er hollt að staldra við, líta um öxl og íhuga hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru. Tilkoma Marshall-aðstoðarinnar veitti mörgum Evrópuríkjum ríkulega innspýtingu inn í þeirra hagkerfi og efnahagslíf eftir seinni heimstyrjöldina. Aðstoðin var framkvæmd með ýmsum útfærslum. Íslendingar urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá hæsta framlagið miðað við höfðatölu. Mörgum þótti það einkennilegt þar sem landið var ekki sárþjáð og þjakað af völdum stríðsins, hafði aftur á móti hagnast vel á hersetu breta og bandaríkjamanna á Íslandi. Í rannsókn þessari ákvað höfundur að skoða hver áhrif aðstoðarinnar var á efnahag Íslands og enn fremur hvort og þá með hvaða hætti þessara áhrifa gæti enn í dag og hvaða þróun hefur átt sér stað. Tekin voru fyrir stærstu og helstu verkefnin sem ráðist var í fyrir aðstoðarféð. Skoðuð var þróun togaraflota landsins, einnig var skoðuð þróun á fjölda helstu búfjárstofna landsins, farið yfir þróun og vöxt þeirra virkjana sem byggðar voru ásamt því að fara yfir sögu og örlög Áburðarverksmiðjunnar sem byggð var. Áhugavert var að sjá hvernig þessari þróun hefur undið farið fram. Álykta má að áhrifanna gæti enn í dag, þó í ýmsum myndum. Togaraútgerðin breyttist þegar síðutogarar véku fyrir skuttogurum, nautgripum hefur fjölgað jafnt og þétt fá því styrkveitingin var gerð á meðan sauðfé hefur farið fækkandi. Virkjanirnar hafa verið í vexti en Áburðarverksmiðjan var lögð niður. Stuðst var við fræðilegt efni, bækur, greinar og fyrri rannsóknir til að varpa ljósi á stöðuna fyrr og nú.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Ólafsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43463
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43463

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Ólafsdóttir 1973-. Marshall-aðstoðin : áhrif fyrr og nú. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43463