Bifröst University
Eru vélmenni að yfirtaka starfið mitt? Vaxandi samband gervigreindar og almannatengsla á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um vaxandi samband gervigreindar og almannatengsla, hver er staða og þróun gervigreindar í starfi almannatengla og möguleikann á því hvort gervigreind geti komið í stað mannlegra samskipta í störfum almannatengla á Íslandi. Rannsakað er hvort almannatenglar á Íslandi þekkja til hugtaksins gervigreind og hvort þeir nýti sér hana í störfum sínum. Skoðuð var staða og þróun í fræðilegum ritum og fyrri rannsóknum. Til þess að ná fram svörum um stöðu gervigreindar í almannatengslum á Íslandi var svo framkvæmd eigindleg rannsókn sem samanstendur af fimm hálf-opnum einstaklingsviðtölum við starfandi almannatengla á Íslandi. Í þeim er þátttakendum gefið tækifæri á að lýsa afstöðu sinni til gervigreindar og þeir spurðir út í notkun á henni í störfum sínum. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að almannatenglar á Íslandi kannast við gervigreind en nýta sér hana ekki í störfum eins mikið og ætla má, miðað við niðurstöður erlendra rannsókna. Þá má ætla að helsta skýring þess sé smæð geirans á landinu, lítil sérþekking á gervigreind og skortur á fagmenntuðum einstaklingum í störfum almannatengla. Þá getur gervigreind ekki komið í stað mannlegra samskipta en getur vissulega hjálpað til við greiningu, úrvinnslu og eftirfylgni daglegra verkefna almannatengils.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karítas Sól Kristjánsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43462
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43462