Back to results

Bifröst University

Verkferlar KSÍ í kjölfar krísu : hvaða verkferlar eru til staðar hjá KSÍ þegar kemur að tilkynningum um kynferðisbrot og hafa þeir breyst í kjölfar krísu árið 2021?

Abstract

dc:description.abstract

Haustið 2021 lenti Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, í krísu vegna meintra kynferðisbrota nokkurra landsliðsmanna og viðbragða við ásökunum þess efnis, en KSÍ var meðal annars sakað um þöggun og að standa með gerendum. Afleiðingarnar urðu þær að Guðni Bergsson, þáverandi formaður, og öll stjórn sambandsins sagði af sér eftir mikla pressu í samfélaginu. Höfundur þessarar ritgerðar vildi athuga hvort og þá hvernig verkferlar sambandsins hafa breyst eftir krísuna. Hvað er KSÍ að gera til að koma í veg fyrir að slík krísa endurtaki sig? Gerð var eigindleg rannsókn í formi hálfopinna viðtala, þar sem rætt var við tvo háttsetta starfsmenn KSÍ. Einnig var framkvæmd tilviksrannsókn. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að verkferlar sambandsins hafa lítið breyst, þrátt fyrir krísuna. KSÍ hefur enn ekki ráðið inn starfsmann sem sinnir krísustjórn einni saman og sömu starfsmenn, starfsmenn sem sinna öðrum verkefnum á skrifstofu KSÍ, sinna sömu verkefnum er kemur að krísustjórnun. Þó er sambandið að vinna í að byggja upp mannorð sitt á nýjan leik, ásamt því að vinna í að fyrirbyggja að slík krísa geti endurtekið sig. Það er til dæmis gert með fræðslu fyrir landsliðsfólk. Rannsóknin leiddi einnig í ljós hve gríðarlega erfið staðan sem starfsfólk KSÍ var í, á meðan það glímdi við viðkvæmt málefni undir augum þjóðarinnar, sem krafðist viðbragða. Ólíkar væntingar hagsmunaaðila, nafnleynd, og sakleysi uns sekt er sönnuð spilaði allt sinn hlut í að gera KSÍ erfitt fyrir. Starfsmenn sambandsins gerðu sitt besta undir erfiðum kringumstæðum, en gerðu sig sek um mistök. Mistök sem sambandið vill ekki endurtaka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Ingi Hafþórsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43461
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43461

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Ingi Hafþórsson 1991-. Verkferlar KSÍ í kjölfar krísu : hvaða verkferlar eru til staðar hjá KSÍ þegar kemur að tilkynningum um kynferðisbrot og hafa þeir breyst í kjölfar krísu árið 2021?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43461