Back to results

Bifröst University

Traust almennings til fjölmiðla : hvert er traust almennings til fjölmiðla og hafa falsfréttir þar áhrif?

Abstract

dc:description.abstract

Mikilvægt er í lýðræðislegu samfélagi að traust til fjölmiðla sé ávallt til staðar. Fjölmiðlar hafa það mikilvæga hlutverk að halda almenningi og samfélaginu öllu vel upplýstu um það sem er að gerast í kringum það hverju sinni, sem og að miðla til fólks hvað er að gerast í löndunum í kring. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna hversu mikið traust almenningur ber til fjölmiðla og sjá hvort falsfréttir hafi einhver áhrif þar á. Meira hefur verið um dreifingu á falsfréttum undanfarin ár þó svo að uppruna þeirra sé að finna marga áratugi aftur í tímann. Ástæða fyrir dreifingu þeirra er aukin tæknivæðing í heiminum og hefur þar af leiðandi notkun internetsins aukist til muna, sem og notkun samfélagsmiðla. Notast var við megindlega aðferð við gerð þessarar rannsóknar. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að almennt beri fólk ágætis traust til fjölmiðla en þó virðist vera sem falsfréttir hafi þar áhrif. Svo virðist einnig vera að fólk beri meira traust til ljósvakamiðla heldur en annarra miðla. Almenningur, og í raun allt samfélagið, verður mikið fyrir áhrifum fjölmiðla á degi hverjum. Því er mikilvægt að auka miðlalæsi svo að fólk geti átt auðveldara með að átta sig á þeim aragrúa upplýsinga sem það verður fyrir á hverjum degi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Hermannsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43459
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43459

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Hermannsdóttir 1993-. Traust almennings til fjölmiðla : hvert er traust almennings til fjölmiðla og hafa falsfréttir þar áhrif?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43459