Back to results

Bifröst University

Áhrifaþættir við val neytenda á byggingavöruverslun

Abstract

dc:description.abstract

Hvernig velja neytendur sér byggingavöruverslun til þess að stunda viðskipti við í dag? Og hvernig geta byggingavöruverslanir haft áhrif á slíka ákvarðanatöku? Tilgangur þessa lokaverkefnis er að rannsaka áhrifaþætti í vali neytenda á byggingavöruverslunum á Íslandi. Ástæðan fyrir valinu á þessu viðfangsefni er sú að áhrifaþættirnir hafa án vafa tekið breytingum í sögulegu samhengi, sé horft til almennrar þróunar á íslenskum markaði í formi fólksfjölgunar, aukins aðgengis að vörum (vefverslanir, auglýsingar o.s.frv.) og í kjölfarið þeirrar samkeppni sem myndast um þau verðmæti sem hægt er að sækja. Aðilar á byggingavörumarkaði eru mun stærri en áður var og eru dæmi þess að erlend stórfyrirtæki hafa sýnt markaðnum áhuga og jafnvel sest að hérlendis sem er til marks um verðmætin sem hægt er að sækja í dag. En samhliða slíkri þróun hlýtur samkeppni að aukast – samningsstaða neytandans styrkist og hefur hann vald til að fara með sín viðskipti þangað sem honum hentar hverju sinni – fleiri en einn aðili á markaðnum hefur innviði og getu til að bjóða neytandanum upp á tiltekna vöru og jafnvel á tilteknu verði. Hlutverk markaðsaðila í þessu samhengi er að uppfylla þarfir og væntingar neytandans með sem bestum hætti og ná viðskiptunum þannig til sín. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við megindlega rannsóknaraðferð þar sem lögð var spurningakönnun fyrir hóp neytenda og var þátttöku aflað í formi kostaðrar Facebook auglýsingar til að auka áreiðanleika í niðurstöðum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að helstu áhrifaþættir neytenda í vali á byggingavöruverslun, eru góð þjónusta, staðsetning, vöruúrval og verð. Helstu áhrifavaldur endurkomu og jafnframt skilgreining neytenda á góðri þjónustu felist aðallega í starfsfólki verslunarinnar þ.e. þjónustulund, aðgengi og þekking. Af framangreindu leiðir rannsóknarspurningin – hverjir eru áhrifaþættirnir í vali neytenda á byggingavöruverslun á Íslandi? Leitarorð: Smásala, byggingavörumarkaður, neytendahegðun, samkeppni

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Gylfi Þorbjörnsson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42957
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42957

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Gylfi Þorbjörnsson 1999-. Áhrifaþættir við val neytenda á byggingavöruverslun. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42957