Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er unnið út frá rannsóknarspurningunni: „ Er Íslandsbanki undir eða yfir verðlagður þann 20.apríl 2022?“ Byrjað var á því að gera grein fyrir sögu Íslandsbanka, hvernig hann er uppbyggður og hvaða markað bankinn starfar á. Eftir það var fræðilegur bakgrunnur skoðaður og ákveðið að framkvæma stefnumiðaða greiningu með notkun PESTEL greiningu, Fimm krafta líkani Porters og SVÓT greiningu. Síðan voru helstu verðmatsaðferðir skoðaðar og ákveðið að nota samanburðargreiningu til þess að framkvæma endanlegt verðmat á Íslandsbanka. Byrjað var á að framkvæma stefnumiðaða greiningu með hjálp þeirra tækja sem nefnd eru hér fyrir ofan. Stefnumiðaða greiningin kom vel út fyrir bankann og var því farið yfir í að framkvæma fjárhagsgreiningu. Þar voru ársreikningar frá 2017 – 2021 skoðaðir og lykil fjármál og kennitölur greindar. Allar lykil tölur komu vel út hjá bankanum og því næst var samanburðargreining framkvæmd til að fá endanlegar niðurstöður. Samanburðargreiningin fór þannig fram að fundnir voru átta samanburðarhæfir bankar og út frá þeim fundið miðgildi og meðaltal þeirra kennitalna sem ákveðið var að nota í verðmatinu. Notast var við V/H hlutfall, V/I hlutfal og ávöxtun á tekjum %. Þessar þrjár kennitölur voru valdar þar sem talið var að þær myndu gefa marktækar niðurstöður um verðlagningu bankans. Niðurstöður verðmatsins eru að Íslandsbanki er undirverðlagður á hlutabréfamarkaði þann 20.april 2022.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ísak Viktorsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42549
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42549