Back to results

Bifröst University

Upplýsingatækni í Íslenskum Toppfótbolta

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um upplýsingatækni og gagnaöflun í íslenskum fótbolta. Skoðað verður hvernig staðið er að þessum málum hjá aðildarfélögum Íslensks Toppfótbolta (ÍTF) sem eru tvær efstu deildir karla og kvenna hér á landi. Þetta verður rannsakað með það í huga að skoða mögulega tekjumöguleika sem að íslenskum aðildarfélög geti staðið til boða með markvissri og staðbundinni notkun á tækninni. Rannsakandi vill með þessu auka við þann skilning sem nú þegar kann að vera hjá forráðamönnum íþróttafélaganna og nú eða bæta skilning hjá þeim sem ekki kunna að hafa kynnt sér málefnið. Rannsóknarspurningin er: eru tengsl á milli aukinnar notkun upplýsingatækni/gagnaöflunar og aukinnar tekjumöguleika íslensk toppfótbolta? Með þessu vildi rannsakandinn finna tengslin á milli aukinnar notkun á upplýsingatækni og gagnaöflun og tekjumöguleika sem mögulega standa til boða fyrir íslensk félög. Rannsóknin sem var framkvæmd er tvíþætt en fengir voru þrír viðmælendur sem allir tengjast íslenskum fótbolta hver á sinn hátt. Þá var send út spurningarkönnun á forráðamenn aðildarfélaga hjá ÍTF, sú könnun var sett fram til að kanna viðhorf og stöðu félaga gagnvart upplýsingatækni og gagnaöflun. Rannsóknin leiddi í ljós að það eru tengsl á milli aukinna tekjumöguleika og aukinnar notkunar á upplýsingatækni og gagnaöflun. Hins vegar er það svo að notkun á þessari tækni og þeim hugbúnaði sem honum kann að fylgja þarf að fylgja þekking og þeir sem koma að þjálfun félaga þurfa að láta breytur tala saman, svo virðist vera að ekki sé nægileg sérþekking innan ÍTF og er það helsta áhyggjuefni félaganna. Þá sýndu niðurstöður fram á að það er núningur á milli afrekstefnu félaganna og þeirri menningu sem ríkir í íslensku íþróttalífi. Ef vel er staðið að innleiðingu á þeim stöðugildum sem þarf er árangurs að vænta en eins og með annaði í fótboltanum þarf margt að vinna saman eins mun koma fram í þessari rannsóknarritgerð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgir Freyr Árnason 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42546
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42546

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgir Freyr Árnason 1991-. Upplýsingatækni í Íslenskum Toppfótbolta. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42546