Back to results

Bifröst University

Hvernig er þróun sjálfvirknivæðingar í smásöluverslun á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er skoðað hvernig sjálfvirknivæðing lítur út í íslenskum smásöluverslunum. Skoðað er hvaða tól og aðferðir eru notaðar innanlands og utan, í fræðilegu yfirliti og þeim gerð skil auk þess að farið er yfir hvernig þau geta unnið saman. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvernig sjálfvirknivæðing lítur út í smásöluverslunum á Íslandi, ekki var tekið tillit til skoðana viðskiptavina á henni eða hvað þeim finnst um nýjungar í smásöluverslunum. Því voru framkvæmd eigindleg viðtöl við stjórnendur helstu smásöluverslana og þjónustufyrirtækja tengd þeim, stuðst var við aðleiðslu í hálfopnum viðtölum til þess að viðmælendur gæfu einlæg svör. Rannsóknarspurningin sem var lögð fyrir og höfð að leiðarljósi í gegnum þetta verkefni er: Hvernig er þróun sjálfvirknivæðingar í smásöluverslunum á Íslandi? Farið er yfir sögulega þróun smásöluverslana, fyrri rannsóknir á þessu sviði, fjárhagslega greiningu helstu smásala Íslands, hvaða áfangar hafa náðst hér á landi í sjálfvirknivæðingu auk fyrirmynda á þeirri vegferð og loks er farið í þemagreiningu á helstu niðurstöðum úr þeim viðtölum sem voru tekin. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna hvernig sjálfvirknivæðing smásöluverslana lítur út á Íslandi og hvaða tól og vélbúnaður er mest notaður á þeirri vegferð. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur einnig fram hvernig samlegðaráhrif stafrænnar þróunar og sjálfvirknivæðingar spila saman. Þau tól og sú gervigreind sem er notuð við að reyna hámarka nýtingu á hvern fermeter vegna minnkunar á verslunum skv. aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna hvernig sjálfvirknivæðing smásöluverslana lítur út á Íslandi, hvaða tól er einna helst stuðst við á þeirri vegferð og hvað framtíðin ber í skauti sér. Loks hvernig breytt neysluhegðun hefur áhrif á staðbundnar verslanir á Íslandi og kröfunar um heildrænni verslunar upplifun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ástþór Sindri Eiríksson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42545
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42545

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ástþór Sindri Eiríksson 1999-. Hvernig er þróun sjálfvirknivæðingar í smásöluverslun á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42545