Back to results

Bifröst University

Greiðslur til eigenda einkahlutafélaga- og skattlagning slíkra úttekta.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um greiðslur úr einkahlutafélögum til eigenda þeirra. Með því að skoða hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt svo úttekt úr félagi telst lögmæt samkvæmt reglum hlutafélagalöggjafarinnar og tekjuskattslaga. Umfjöllunarefninu er ætlað að veita innsýn í þær ströngu reglur sem gilda í félagarétti um úthlutun verðmæta úr einkahlutafélagi. Ásamt því að skoða hver grundvöllur slíkra úttekta er út frá hagnaðarhugtakinu. Reynt verður að skerpa á mikilvægi þess að öll úttekt verðmæta úr einkahlutafélögum til eigenda þeirra fari eftir reglum félagaréttar til að úthlutun sé lögleg og því reynt að gera þeim reglum góð skil. Þar sem skattskyldan er mismunandi eftir því hvort um löglega eða ólöglega úthlutun er að ræða og frádráttarheimildir tekjuskattslaga takmarkaðar við löglega úthlutun verður arðshugtakið skilgreint í skattalegum skilningi. Að þessu sögðu þá bera eigendur takmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Því eru að finna strangar reglur sem gilda þegar úthluta á verðmætum til eigenda. Tilgangur þeirra reglna er að vernda hagsmuni lánadrottna, með því að aðskilja fjármuni félagsins og eigin fjár ráðandi aðila. Að áliti höfundar eru reglurnar skýrar sem heimila úttekt verðmæta úr félagi samkvæmt 73. gr. og jafnframt í þeim skilyrðum sem er að finna í 74. gr. ehfl. Að öðru leyti er eigendum þröngur stakkur sniðinn þegar verðmæti eru tekin úr félagi svo ekki sé vegið að hagsmunum lánadrottna með því að ganga á fjármuni félagsins. Því þarf raunveruleg fjárhagsleg staða félagsins ávallt að vera skýr.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aðalheiður Ólafsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42538

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aðalheiður Ólafsdóttir 1979-. Greiðslur til eigenda einkahlutafélaga- og skattlagning slíkra úttekta.. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42538