Back to results

Bifröst University

Sundrung eða samstaða? Áhrif fjármálahrunsins 2008 og fyrstu bylgja COVID-19 heimsfaraldursins 2020-2021 á stjórnmálaumhverfið á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Óvæntir atburðir eins og krísur geta ógnað grunnskipulagi og grundvallargildum samfélagsins og haft þar með ýmis áhrif. Þar er stjórnmálaumhverfið á Íslandi engin undantekning. Rannsóknarspurning þessarar rannsóknar er: „Hvaða áhrif höfðu fjármálahrunið 2008 og fyrstu bylgjur COVID-19 heimsfaraldursins 2020-2021 á stjórnmálaumhverfið á Íslandi?“ og markmið hennar er að skoða hvaða áhrif þessar mismunandi krísur höfðu á stjórnmálaumhverfið á Íslandi ásamt því að gera samanburð þar á milli. Tilgangur rannsóknarinnar er tvíþættur. Annars vegar að taka saman fræðilegar heimildir um áhrif krísa á stjórnmálaumhverfi með eignunarkenninguna, kenninguna um hlutfallsskort og fræðilega hugtakið mikilvæg tímamót að leiðarljósi. Hins vegar að framkvæma eigindlega rannsókn þar sem tekin eru hálf-opin djúpviðtöl við úrtak sem samanstendur af stjórnmálafræðingi, tveimur stjórnmálamönnum, almennum kjósanda og almannatengli. Upplýsingarnar sem fengust úr samantektinni á heimildunum annars vegar og viðtölunum hins vegar gefa góða yfirsýn yfir áhrifin og samanburðinn á milli þeirra. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að áhrif fjármálahrunsins á stjórnmálaumhverfið á Íslandi fólu í sér sundrung og voru mun djúpstæðari en áhrif fyrstu bylgja heimsfaraldursins. Reiði og vantraust utan úr samfélaginu í garð þeirra sem báru ábyrgð á krísunni var mikið og stjórnmálamönnum í framlínunni var refsað. Áhrif fyrstu bylgja heimsfaraldursins fólu í sér meiri samstöðu þar sem ekki var hægt að skella skuldinni á ákveðinn aðila, sérfræðingar fóru með valdið og ríkisstjórnin hélt velli milli Alþingiskosninga. Það sem krísurnar eiga sameiginlegt er að ekki var gætt nægilega vel að lýðræðinu í kjölfar þeirra og samsetning stjórnmálaumhverfisins tók breytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Líney Lilja Þrastardóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42534
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42534

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Líney Lilja Þrastardóttir 2001-. Sundrung eða samstaða? Áhrif fjármálahrunsins 2008 og fyrstu bylgja COVID-19 heimsfaraldursins 2020-2021 á stjórnmálaumhverfið á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42534