Back to results

Bifröst University

Í gegnum brimskaflinn : mikilvægi almannatengsla hjá fyrirtækjum og stjórnvöldum á erfiðum tímum

Abstract

dc:description.abstract

Almannatengsl eru mikilvæg og á erfiðum tímum. Í þessari rannsókn er mikilvægi almannatengsla kannað með hliðsjón af bankahruninu haustið 2008 og þeirri atburðarás sem fylgdi í kjölfarið. Í forkönnun sem gerð var árin 2006 og 2007 voru tengsl fyrirtækja og stjórnmálaafla við fjölmiðla könnuð. Í aðal rannsókninni var viðhorf stjórnmálamanna og stjórnenda fyrirtækja til almannatengsla könnuð. Þáttastjórnendur í fréttatengdum dægurmálaþáttum hafa tekið eftir því að stjórnvöld auka stuðning sinn við þá málaflokka sem fjallað er um í þáttunum. Þeim finnst hagsmunaaðilar ágengir í að koma sínum málum að og hefur það í mörgum tilfellum neikvæð áhrif. Því er mikilvægt fyrir fyrirtæki og stjórnmálamenn að fara rétt að stjórnendum þáttanna. Einnig kom fram að fjölmiðlar þóknast eigendum sínum, hvort sem það er ríkið eða einkaaðilar. Stjórnmálamenn voru sammála um að stjórnvöld þyrftu að nýta almannatengslin betur, veita meiri upplýsingar, fara í upplýsingaherferðir og tala opinskátt. Sem dæmi hefði mátt veita erlendu fjölmiðlafólki, sem kom til Íslands í kjölfar bankahrunsins, betri upplýsingar. Þannig hefði verið hægt að tempra skaðann sem ímynd Íslands varð fyrir, þar sem oft var farið töluvert frjálslega með staðreyndir í erlendum fjölmiðlum. Fyrirtæki sem eru með almannatengil segja að skuldbinding og skilningur stjórnenda verði að koma til svo almannatengsl nái að festa rætur í fyrirtækjum og virka sem skyldi. Í rannsókninni kemur fram að hlutverk almannatengla er að þjónusta fréttamenn, fjölmiðlafólk og þar með almenning um réttar upplýsingar og staðreyndir og að viðhalda ímynd fyrirtækis eða þjóðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Birna Baldursdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4085
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4085

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Birna Baldursdóttir 1973-. Í gegnum brimskaflinn : mikilvægi almannatengsla hjá fyrirtækjum og stjórnvöldum á erfiðum tímum. 2009. http://hdl.handle.net/1946/4085