Back to results

Bifröst University

Peningamálastefna Seðlabankans : virka stýrivextir sem stjórntæki í litlu opnu hagkerfi

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur gengið fremur illa við peninamálastjórnun á Íslandi. Verðbólga hefur verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands nánast samfleytt frá árinu 2006 þrátt fyrir að stýrivextir hafi verið mjög háir. Þessir háu stýrivextir ásamt slöku gengi hafa velt upp þeirri spurningu hvort stýrivextir henti sem stjórntæki á Íslandi og yfir höfuð í litlum opnum hagkerfum með sjálfstæða mynt. Aðstæður á Íslandi eru um margt óvenjulegar og því er Ísland í þessu samhengi ekki dæmigert lítið opið hagkerfi með sjálfstæða mynt. Má þar nefna hversu smátt það er, en það er mun smærra en mörg önnur ríki sem teljast smá, auk þess sem á Íslandi tíðkast að verðtryggja langtímaskuldbindingar. Sérstaða Íslands veldur því að stýrivextir virka minna en þeir myndu ella gera en ljóst er þó af almennri umfjöllun um efnið að lítil opin hagkerfi þurfa að glíma við vandamál sem stærri ríki þurfa ekki að gera. Stýrivextir hafa því takmarkaðri virkni sem stjórntæki því minna sem hagkerfið er, að því gefnu að það sé opið og með sjálfstæða mynt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálmar Þorsteinsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4058
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4058

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálmar Þorsteinsson 1983-. Peningamálastefna Seðlabankans : virka stýrivextir sem stjórntæki í litlu opnu hagkerfi. 2009. http://hdl.handle.net/1946/4058