Abstract
dc:description.abstractHefur nýliðunarstuðningur í landbúnaði náð markmiðum sínum til að auka nýliðun í garðyrkju? Tekin voru eigindleg viðtöl við nýja garðyrkjubændur er flokkast sem nýliðar samkvæmt rammasamningi sem stjórnvöld gerðu við Bændasamtök Íslands 2016. Skoðuð er sögulega þróun landbúnaðar á Íslandi í gegnum aldirnar og fram að nýjustu búvörusamningunum 2016, þar sem í fyrsta sinn var boðið upp á nýliðunarstuðning fyrir garðyrkju. Meðalaldur garðyrkjubænda hefur í gegnum tíðina verið sá hæsti á meðal búgreina og því nauðsynlegt að efla nýliðun. Enginn nýliðanna sagðist hafa gerst nýliði vegna nýliðunarstuðningsins, en þó hafi hann verið eins og kærkomin búbót ef hann fékkst. Hann sé bæði of óáreiðanlegur til að hægt sé að reikna með honum sem fjármögnun og einnig skorti að allar upplýsingar um stigagjöfina og umsóknarferlið séu aðgengilegar á einum og sama staðnum. Þá hafi meðalaldur bænda hækkað á þeim tíma síðan nýliðunarstuðningur fyrir allar búgreinar var samþykktur árið 2016. Þó skekkir það myndina að fjöldi lögaðila hefur aukist í þeim útreikningi og engar upplýsingar liggja fyrir um aldur raunverulegra eigenda þeirra félaga. Ljóst er að ef markmiðið er að auka nýliðun með nýliðunarstuðningi þarf hann að verða markvissari en hann er í dag.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Óli Björn Finnsson 1989-
- Jón Ingi Sigvaldason 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40568
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40568