Abstract
dc:description.abstractÞví hefur verið fleygt fram að mannkynið muni upplifa meiri breytingar á næstu tuttugu árum en hafa verið á síðustu þrjú hundruð. Stafræn umbreyting, sjálfvirknivæðing og gervigreind er allt tækni sem spjallmenni byggir á. Spjallmenni hafa verið sett upp á vefsíðum, samfélagsmiðlum og spjallforritum, þau veita ýmiskonar þjónustu sem áður var veitt af starfsfólki. Nú hafa vaxið úr grasi kynslóðir X og Y sem kjósa einna helst að eiga samskipti með textaskilaboðum. Því þurfa skipulagsheildir að fylgja framþróun í tækni til að dragast ekki aftur úr eða eiga það á hættu að hverfa. Markmið ritgerðarinnar er að auka þekkingu skipulagsheilda á mögulegum ávinningi þess að bjóða viðskiptavinum þjónustu spjallmenna ásamt því að auka þekkingu á helstu áskorunum við innleiðingu og notkun spjallmenna. Framkvæmd var eigindleg rannsókn með viðtölum við sex manns sem höfðu reynslu af innleiðingu eða notkun spjallmenna. Eigindleg rannsókn var valin með það fyrir augum að ná fram ítarlegum upplýsingum frá viðmælendum. Einnig var stuðst við fræðibækur og erlendar fræðigreinar um viðfangsefnið. Af niðstöðum rannsóknarinnar má draga þá ályktun að ávinningur skipulagsheilda af notkun spjallmenna gæti: minnkað álag á starfsmenn, tekið kúf af tímabundnu álagi, auki notkun stafrænna lausna, veiti hraðari þjónustu til viðskiptavina, auki sölu og ánægju viðskiptavina og fylgi framþróun og kröfum núverandi og komandi kynslóða. Þegar kom að áskorunum þá má draga þá ályktun að þær geti verið þessar helstar að: allir séu samtaka og stefni að sama markmiði, hlutaðeigandi starfsmenn séu þátttakendur, drífandi leiðtogi komi að ferlinu, upplýsingaflæði sé gott, skilgreina mikilvægustu þættina, boðin sé aðstoð starfsmanns með netspjalli, viðhalda viðskiptasambandi og að þjálfun sé tímafrek en nauðsynleg.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Súsanna Eva Helgadóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40545
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40545