Bifröst University
Val neytenda á íþróttavöruverslun : hverjir eru helstu áhrifaþættir í vali neytenda á íþróttavöruverslun á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er neytendahegðun skoðuð út frá þeim áhrifaþáttum sem neytendur leggja mesta áherslu á þegar kemur að því að velja íþróttavöruverslun til að stunda viðskipti við. Gerð var megindleg rannsókn sem spurningakönnun sem lögð var fyrir íslenska neytendur. Markmið rannsóknarinnar var að sjá hvort munur væri milli ólíkra hópa, hvort munur væri milli þeirra sem búa á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, hvort munur væri á þessari rannsókn og fyrri rannsóknum og hvort munur væri milli hópa eftir því hvar þeir versla oftast. Rannsóknarspurningin sem lögð var fyrir sem höfð var af leiðarljósi í gegnum allt verkefnið er: Hverjir eru helstu áhrifaþættir í vali neytenda á íþróttavöruverslun á Íslandi? Í fræðilega bakgrunni rannsóknarinnar er fjallað um neytendahegðun, áhrifaþætti neytendahegðunar, kaupákvörðunarferlið, markaðshlutun, markaðsmiðun, staðfærslu, umfjöllun um verslanir, greiningu á íslenska íþróttavörumarkaðnum, ánægju og viðskiptavinatryggð. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu sem þessi rannsókn styðst við þar sem niðurstöður þeirra rannsókna var aðalundirstaðan í spurningakönnuninni sem lögð var fram í þessari rannsókn. Þær niðurstöður sem komu í ljós voru að þeir áhrifaþættir sem skipta mestu máli í vali neytenda á íþróttavöruverslun eru verð, vöruúrval, netverslun til staðar að auki, þjónustustig og vörumerki í verslun. Þessir þættir skipta íslenska neytendur mestu máli og sem þeir nota helst til að velja á milli ólíkra íþróttavöruverslana.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Júlíus Óskar Ólafsson 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40540
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40540