Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni var beint sjónum að notkun gagna í ákvörðunarferli íslenskra stjórnenda ásamt því að skoða aðgengi að fjárhagsupplýsingum og notkun annarra gagna við ákvörðunartöku. Rannsóknin skilgreinist sem eigindleg þar sem tekin voru djúpviðtöl við átta stjórnendur úr íslensku atvinnulífi. Rannsóknarspurningin, sem var höfð að leiðarljósi við framkvæmd rannsóknar, er: Nýta íslenskir stjórnendur sér fjárhagsgögn við ákvörðunartökur og á hvaða hátt? Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur til viðeigandi fræðagrunns þar sem finna má fræðilega umfjöllun um fjármál fyrirtækja, samfélagslega ábyrgð þeirra, þekkingarstjórnun, þróun tölvunnar, gögn, gervigreind og vaxtarskeið fyrirtækja ásamt ósamhverfu upplýsinga og umboðsvanda. Helstu niðurstöður gefa til kynna að stjórnendur íslenskra fyrirtækja nýti sér flestir fjárhagsgögn að einhverju leyti til ákvörðunartöku. Nýting gagna varð almennari eftir því sem ársvelta fyrirtækjanna jókst og fjöldi mælikvarða til álita urðu fleiri. Einnig kom í ljós að stjórnendur nýta sér gögn og upplýsingar fyrst og fremst til undirbyggingar eigin innsæis til þess að taka betri ákvarðanir. Einnig bentu niðurstöður til þess að aðgengi stjórnenda að fjárhagsgögnum var almennt til staðar en tími og kostnaður við greiningu þeirra var hindrun við lestur og notkun þeirra. Því reiða stjórnendur sig gjarnan á upplýsingar frá undirmönnum um lykilmælikvarða og greiningar. Að lokum kom í ljós að sameiginlegir aðrir mælikvarðar sem komu til álita við ákvörðunartöku íslenskra stjórnenda voru tengd samfélagsskýrslum og kölluðu viðmælendur eftir betri lausnum í greiningu og framsetningu á slíkum gögnum. Lykilhugtök: Ákvörðunartaka, gagnadrifin ákvörðunartaka, innsæi, gögn, viðskiptagreind, fjárhagsgögn, sjálfvirknivæðing, lykilmælikvarðar, umboðsvandi, ósamhverfa upplýsinga
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40525
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40525