Back to results

Bifröst University

"Nú er ég komin tilbaka": hreyfing kvenna eftir barnsburð

Abstract

dc:description.abstract

Konur sem að upplifa meðgöngu og fæðingu ganga í gegnum margvíslegar líkamlegar – og andlegar breytingar. Nálgun kvenna að hreyfingu eftir barnsburð hefur lengi verið konum vafamál. Algengt er að mæður eigi erfitt með að meta eigið líkamsástand ásamt því að hreyfimynstur þeirra breytist. Fyrstu skrefin aftur að hreyfingu geta verið þeim flókin og því er mikilvægt fyrir fagaðila eins og þjálfara sem að hafa sérhæft sig í þjálfun nýbakaðra mæðra, að skilja hvað hvetur þær áfram og hvaða þættir hindri þær til hreyfingar. Stuðst var við eigindlega rannsóknarðaðferð en tekin voru viðtöl við fimm rýnihópa, eða samtals 20 mæður sem að höfðu átt barn á síðastliðnu ári. Mæðurnar stunduðu allar einhverskonar hreyfingu fyrir meðgöngu en í mismiklum mæli. Aðferðin hentaði vel til þess að framkalla umræður og sameiginlega og gagnstæðar upplifanir mæðrana. Rannsóknin sýndi fram á að breyttar aðstæður kölluðu fram breytt hreyfimynstur mæðrana og að andleg og líkamleg líðan þeirra getur spilað stór hlutverk í því hvort að þeim líði nægilega vel til þesss að stunda hreyfingu, og einnig í félagslegu umhverfi. Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós væntingar mæðrana til þjálfara en eiginleikar á borð við kyn, menntun, skilningur og hvort að þjálfarinn væri foreldri vor þætti sem að voru þeim mikilvægir. Þjálfarar sem að annast mæður á þessu tímabili þurfa því ekki aðeins að vera meðvitaðir um líkamlegar breytingar og sýna fram á aðlögunarhæfni með þekkingu sinni heldur einnig skilning og nærgætni á þeirra líkamsástandi, aðstæðum og líðan.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tinna Rún Svansdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40513
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40513

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tinna Rún Svansdóttir 1989-. "Nú er ég komin tilbaka": hreyfing kvenna eftir barnsburð. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40513