Back to results

Bifröst University

Krísur skipulagsheilda í kjölfar #MeToo : hvað getur krísa KSÍ árið 2021, sagt til um þróun á krísum eftir tilkomu #MeToo hreyfingarinnar?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er lokaverkefni BA- námi í miðlun og almannatengslum við Háskólann á Bifröst. Raundæmisrannsókn var gerð á krísu Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), árið 2021. Upphaf krísunnar má rekja til pistils eftir Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur sem ber titilinn „Um KSÍ og kvenfyrirlitningu“ en hann birtist á Vísi.is þann 13. ágúst, árið 2021 en þar er KSÍ sakað um að þagga niður ofbeldisbrot íslenskra landsliðsmanna í knattspyrnu. Í ritgerðinni er farið yfir atburðarás krísunnar og hvernig megi rekja aðdraganda hennar til #MeToo hreyfingarinnar á Íslandi. Kenningar W. Timothy Coombs mynda fræðilegan grunn ritgerðarinnar og stuðst er við kenningar hans við greiningu á krísunni. Lagt var upp með að rannsaka hvað krísa KSÍ, frá árinu 2021, gæti sagt til um þróun á krísum eftir tilkomu #MeToo hreyfingarinnar. Eru krísur af þessu tagi ný og sérstök tegund af krísum eða samræmast þessar krísur kenningum sem nú þegar hafa verið settar fram í krísufræðum? Niðurstöður höfundar gefa til kynna að þó svo að krísa KSÍ eigi ýmislegt sameiginlegt með krísuflokki sem Coombs hefur sett fram, svokölluðum e. scansis krísum, þá passar hún þó ekki að öllu leyti með þeim flokki né öðrum krísum sem þegar hafa verið settar fram í krísufræðum og má því kalla hana fordæmalausa. Eftirmálar hreyfinga á samfélagsmiðlum, líkt og #MeToo, geta því verið sérstök ógn við skipulagsheildir og fyrirtæki ef þau hafa eitthvað óhreint í pokahorninu. Lykilorð: Krísa, krísusamskipi, KSÍ, #MeToo, Situational Crisis Communication Theory

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðrún Jónsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40508
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40508

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðrún Jónsdóttir 1991-. Krísur skipulagsheilda í kjölfar #MeToo : hvað getur krísa KSÍ árið 2021, sagt til um þróun á krísum eftir tilkomu #MeToo hreyfingarinnar?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40508