Back to results

Bifröst University

Skol ehf. : viðskiptagreining

Abstract

dc:description.abstract

Því hefur verið haldið fram að Íslendingar séu einhverjir mestu umhverfissóðar í vestrænum heimi, en það sjáist svo lítið vegna þess hve fáir þeir eru, það er að Íslendingar séu umhverfissóðar í höfðatölu samanburði. Hins vegar er margt sem bendir til aukinnar umhverfisvitundar Íslendinga (Mbl.is, 2020). Rannsóknarefni þessarar ritgerðar snýr að því hvort að einhver tækifæri séu fólgin í þessari vitundarvakningu, en megintilgangur þessa verkefnis er að greina hvort það gæti borgað sig fjárhagslega að flytja inn og selja heimilistæki, nánar tiltekið, salernistæki, sem stuðlað gætu að umhverfisvænni hegðun Íslendinga þegar þeir ganga örna sinna. Á meðan margar rannsóknir snúa að umhverfisvitund og -ábyrgð og hvað sé hægt að gera til að sporna við því sem hefur verið talin áhrifa ýmisskonar neyslu á umhverfið, þá eru færri rannsóknir sem snúa að því með beinum hætti hvort í því séu fólgin viðskiptatækifæri – sem gætu bæði unnið að umhverfisverndarmarkmiðum, en á sama tíma skapað virði sem fjárfesting. Þetta er eitt meginviðfangsefni þessarar ritgerðar, en afmarkað á þann hátt að rannsakað er hvernig hægt er að draga úr salernispappírsnotkun samtímis því að nýta viðskiptatækifæri. Hér verður skoðað hversu fýsilegt fyrir fjárfesti að stofna fyrirtæki, nefnt Skol ehf., og flytja inn ákveðið magn af þremur tegundum af skolsetum, með það í huga að selja til almennra neytenda á Íslandi. Þetta myndi draga úr notkun salernispappír sem talinn er vondur fyrir umhverfið að því leiti aðframleiðslan er orkufrek og notast er við skaðleg efni eins og klór (Industrial Shredders, 2020). Nánar verður sagt frá því í kafla þrjú. Þannig hefði þetta rannsóknarefni bæði möguleg fjárhagsleg áhrif fyrir fjárfesti, en samtímis áhrif á umhverfið. Verkefnið skiptist þannig upp að fyrst er farið nokkrum orðum um framleiðslu og innflutning á klósettpappír og sett í samhengi við umhverfisáhrif. Síðan kemur almenn kynning á fyrirbærinu og að henni lokinni sérstakur kafli um hreinlæti. Þar á eftir er fjallað um þær vörur sem hér verða til skoðunar. Við tekur umfjöllun um samkeppni og markaðsáætlun, síðan framkvæmdaáætlun og svo fjárhagsáætlun. Í lokin er svo farið yfir SVÓT-greiningu og endað á niðurstöðum. Ýmiss konar aukaefni er svo að finna í viðauka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Örvar Þór Kristjánsson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39535
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39535

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Örvar Þór Kristjánsson 1978-. Skol ehf. : viðskiptagreining. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39535