Abstract
dc:description.abstractÞað er þekkt staðreynd að notast er við alls kyns auglýsingar til að hafa áhrif á kauphegðun neytenda. Seljendur vöru og þjónustu heita allskonar leiðum til að koma vörum sínum á framfæri og reyna að ná til sín viðskiptavinum með verðlækkunum til styttri eða lengri tíma, afsláttum og tilboðum. Rannsakandi vildi leiða í ljós hvort upplifun neytenda sé sú að markvisst sé verið að blekkja neytendur með því að hækka verð fyrir afsláttadaga og hversu vel kaupendur eru meðvitaðir um slíkar verðbreytingar. Gögn og heimildir voru fengnar af vefsíðum, bókum og úr öðrum rannsóknum. Þegar gagnasöfnun var lokið var farið að safna frumheimildum. Það var gert með því að búa til rannsókn sem var í formi spurningakönnunar og fór hún fram á Facebook. Markmið rannsóknarinnar var að leiða í ljós hvort og þá hvernig kauphegðun neytenda breyttist í kringum tilboðsdaginn Black Friday. Einnig var skoðað hvort upplifun neytenda sé sú að verð séu gagngert hækkuð til að hægt væri að auglýsa hærri afslætti. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að flestir sem hafa verslað á Black Friday er mikill meiri hluti konur. Flestir voru sammála um það að verslanir hækki oft verð sín fyrir tilboðsdaga til að gefa meiri afslátt. Flestir telja að afslættir eru oft ekki góðir heldur um blekkingu sé að ræða og eru flestir á varðbergi gagnvart þeim. Meiri hluti fólks nýtur sér tilboðdaga og segjast hafa gert góð kaup á Black Friday eða sambærilegra tilboðsdaga. Einnig eru flestir sem kynna sér upprunalegt verð á vöru sem er á afslætti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hjördís Björk Þrastardóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39515
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39515