Bifröst University
Hver er staðan á innleiðingu stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla hjá BL?
Abstract
dc:description.abstractStefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla (e. Customer relationship management eða CRM) er mikilvægur hluti af nútíma fyrirtækjarekstri þar sem neytendur gera orðið strangar kröfur um persónulega þjónustu. Innleiðing stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla hófst fyrir fjórum árum hjá BL og var upprunalega innleidd í söludeildir. Verið er að vinna í innleiðingu stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla í aðrar deildir. Markmið rannsóknarinnar sem hér er fjallað um var að kanna hver staðan er á innleiðingu stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla hjá BL og sjá hvaða hindranir eru enn til staðar í innleiðingarferlinu. Einnig var kannað hver upplifun starfsmanna er á stefnumiðaðri stjórnun viðskiptatengsla og hvort þekking sé til staðar hjá þeim á hugmyndafræðinni og hvernig hún nýtist þeim í starfi. Framkvæmdar voru rannsóknir í formi spurningarlista á alla starfsmenn BL ásamt því að viðtöl voru tekin við stjórnendur til að geta greint stöðu innleiðingar. Helsta niðurstaða var sú að innleiðingarferli stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla er á réttri leið. Þó eru hindranir enn til staðar þar sem skilgreining starfsmanna á stefnunni og sýn BL á ávinningi stefnumiðaðrar stjórnunar viðskiptatengsla virðist ekki vera sú sama.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásgeir Hólm Sævarsson 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39505
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39505