Back to results

Bifröst University

„Ég ber sjálfan mig saman við myndina af mér á Instagram“ : áhrif samfélagsmiðla á líkamsímynd karlmanna

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar hefur verið höfundi hugleikið um nokkurt skeið. Leitast verður við að kanna möguleg áhrif samfélagsmiðla á líkamsímynd einstaklinga sem skilgreina kyn sitt við karlkyn. Það er von rannsakanda að efnistök rannsóknarinnar ‎‎dýpki skilning lesandans á mögulegum áhrifum samfélagsmiðla á sjálfmynd einstaklinga sem skilgreina kyn sitt við karlkyn. Rannsóknin er unnin með eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við sex karlkyns þátttakendur á þrítugsaldri. Lýstu þeir upplifun sinni á samfélagsmiðlum og mögulegum áhrifum á líkamsímynd þeirra‏. Jafnframt er tekist á við karlmennskuímyndina í nútíma samfélagi og er viðhorf viðmælenda til hennar kannað. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í líf þátttakenda, á viðhorf þ‏‏‏‏eirra og gildi. Sérstaklega er fjallað um samfélagsmiðilinn Instagram í fræðilegri umfjöllun og sá miðill kemur iðulega fram í samtölum rannsakanda við þátttakendur. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að einstaklingar sem skilgreina kyn sitt karlkyns verða bæði fyrir jákvæðum og neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla á eigin sjálfsmynd. Flestir hafa þeir upplifað andleg og líkamleg veikindi og gert óraunhæfar kröfur á sjálfa sig vegna samanburðar við aðra karlmenn. Þeir töldu allir að áhrifa gæti víða á samfélagsmiðlum og eru móttækilegir fyrir þeim með mismunandi hætti eftir tímabilum í lífi þeirra‏. Þeir voru sammála um að karlmenn ættu að brjótast út úr skelinni og tjá tilfinningar sínar, vera meðvitaðri um áhrif samfélagsmiðla og forðast óraunhæfar kröfur sem gætir víða í samfélaginu. Lykilorð: Samfélagsmiðlar, karlmennska, líkamsímynd, tilfinningar, samkynhneigð, áhrifavaldar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyjólfur Gíslason 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37681
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37681

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyjólfur Gíslason 1986-. „Ég ber sjálfan mig saman við myndina af mér á Instagram“ : áhrif samfélagsmiðla á líkamsímynd karlmanna. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37681