Bifröst University
Ferðamenn detta ekkert af himni ofan : hvernig geta ferðaþjónustufyrirtæki breytt ógn í tækifæri á tímum Covid-19?
Abstract
dc:description.abstractÁrið 2020 mun seint gleymast vegna útbreiðslu kórónuveirunnar Covid-19 og afleiðingum hennar. Ferðaþjónustan hefur orðið illa úti þar sem ferðahömlur í dag eru miklar og vegna þessa hefur orðið tekjuhrun í atvinnugreininni. Tilgangur rannsóknar er því að skoða hvernig ferðaþjónustufyrirtæki geta reynt að komast í gegnum þessa tíma og hvaða tækifæri er hægt að greina í umhverfinu sem gæti veitt samkeppnisforskot, áhrif markaðssetningar og með hvaða hætti möguleg viðspyrna verður. Rannsóknin er byggð á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem rætt var við níu viðmælendur sem allir hafa reynslu úr atvinnugreininni. Viðtölin voru greind í mismunandi þemu og sett í samhengi við fræðilega túlkun og samfélagslegt samhengi. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að ferðamenn komi til með að velja áfangastaði sem þeir telja vera örugga og þar sem ekki er fjölmenni. Ferðaþjónustufyrirtæki ættu því að nota tímann núna til endurskipulagningar, horfa til stefnumótunar, markaðssetningu og leggja áherslu á sérstöðu áfangastaðarins Íslands sem hentar vel þörfum ferðamanna á tímum Covid-19. Áherslan ætti þó að vera á nýsköpun í sjálfbærni og græna ferðamennsku sem hægt væri að nýta til aðgreiningar fyrir áfangastaðinn og ferðaþjónustufyrirtækin sem þar starfa. Rannsóknin getur haft gildi fyrir stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja og gefið þannig innsýn inn í hvaða áherslur ætti að horfa til en niðurstöður bera þó þess einnig merki að þar sem faraldrinum er ekki lokið er nauðsynlegt að horfa til frekari rannsókna og meta þær afleiðingar sem Covid-19 farsóttin mun hafa í heild sinni á atvinnugreinina þegar hefur tekist að ráða niðurlögum veirunnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svana Emilía Kristinsdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37678
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37678