Back to results

Bifröst University

Áhrifaþættir sjónvarpsauglýsinga : gera þekktir talsmenn sjónvarpsauglýsingar eftirminnilegri?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknarskýrslu er að greina og setja fram helstu áhrifaþætti sem hafa áhrif á minni áhorfenda á sjónvarpsauglýsingum. Rannsakað var hvaða þættir þátttakendur töldu hafa mest áhrif á það af hverju þeir mundu eftir auglýsingum úr myndbandi sem sýnt var í upphafi könnunarinnar. Rannsóknin var framkvæmd með megindlegri rannsóknaraðferð sem fól í sér spurningakönnun á netinu. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara var: Gera þekktir talsmenn sjónvarpsauglýsingar eftirminnilegri? Spurningakönnuninni var skipt upp í 17 hluta og var það gert til þess að koma í veg fyrir að þátttakendur vissu hvað var verið að rannsaka. Rannsóknin snerist út á það hvaða auglýsingar þátttakendur mundu eftir og af hverju þeir töldu sig muna eftir ákveðnum auglýsingum. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á fyrrum rannsóknum og fræðum um viðfangsefnið. Niðurstöðurnar eru settar fram með myndrænum hætti og lýsandi tölfræði, þá var einnig notast við einkunnargjöf þar sem hverjum áhrifaþátt var gefin stig og reiknað meðaltal. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þrír helstu áhrifaþættir sem höfðu áhrif á það af hverju þátttakendur töldu sig muna eftir auglýsingu voru: einstaklingurinn sem lék í auglýsingunni, litirnir í auglýsingunni og tónlistin. Rannsóknin gefur innsýn inn í huga áhorfenda þegar þeir horfa á sjónvarpsauglýsingar, þó er athyglin betri þegar um könnun er að ræða en daglegt líf þátttakanda fyrir framan sjónvarpið. Mikilvægt er að skoða þessa þætti til að gefa fyrirtækjum tækifæri til að sjá hvað hefur mest áhrif á það af hverju áhorfendur muna eftir einstaka auglýsingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynja Dögg Bjarnadóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37668
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37668

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynja Dögg Bjarnadóttir 1994-. Áhrifaþættir sjónvarpsauglýsinga : gera þekktir talsmenn sjónvarpsauglýsingar eftirminnilegri?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37668