Back to results

Bifröst University

Fjárveitingar til heilbrigðis- og menntamála árin 2000 til 2008 : samanburður á fjárveitingum til Landspítala og Háskóla Íslands

Abstract

dc:description.abstract

Heilbrigðismál og menntamál eru tvær af meginstoðum hins íslenska þjóðfélags. Mörg undanfarin ár hefur miklu fé verið varið til þessarra málaflokka á fjárlögum. Íslenska heilbrigðiskerfið er flókið eins og mörg önnur heilbrigðiskerfi þróaðra ríkja og mikilvægt að þar spili saman margir þættir sem allir hafa það markmið að stuðla að bættri heilsu og þannig draga verulega úr kostnaði þjóðfélaga vegna heilbrigðismála. Í þessu meistaraverkefni er þróun fjárveitinga ríkisvaldsins til heilbrigðismála og menntamála skoðuð árin 2000 – 2008. Einnig er hér skoðað hvernig fjárveitingum hefur verið háttað til Landspítalans og Háskóla Íslands á tímabilinu en þar er um að ræða tvær stærstu stofnanir málaflokkanna tveggja. Fjárveitingar til heilbrigðismála, sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, hafa dregist saman á tímabilinu og við skoðun á fjárveitingum til Landspítalans kemur það sama í ljós. Landspítalanum hefur undanfarin ár verið gert að hagræða í rekstri þrátt fyrir aukna starfsemi. Ljóst má vera að með sama áframhaldi mun hin aukna hagræðingarkrafa koma niður á þjónustu spítalans við sjúklinga sína. Greina má aukningu í fjárveitingum til menntakerfisins á undanförnum árum þannig að sú hagræðingarkrafa sem gerð hefur til heilbrigðiskerfisins virðist ekki hafa náð á sama hátt til menntakerfisins. Enda kemur það fram í áherslum ríkisstjórnaflokkanna á því tímabili sem hér hefur verið skoðað að menntamál skuli höfð í öndvegi og því má telja að fjárveitingar ríkissjóðs hafi borið keim af því. Það vekur athygli þegar samanburður er gerður á heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu að fjárveitingar til Landspítalans eins eru álíka miklar og til menntakerfisins í heild sinni (grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigs) sem sýnir hversu miklum fjármunum þarf að verja til reksturs Landspítalans enda er rekstur hans afar umfangsmikill. Auk þess er vert að veita því athygli að á árunum 2005 og 2006 fóru ríflega 11% af ráðstöfunarfé Landspítalans til vísinda og kennslumála en víða erlendis eru það háskólar en ekki sjúkrahús sem bera þennan kostnað. Einnig vekur athygli að sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkisins árin 2000 – 2007 lækkaði framlagið til Landspítala um 9% á meðan það hækkaði um 71,6% til Háskóla Íslands á sama tímabili.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Örn Þorvarður Þorvarðarson 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3666
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3666

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Örn Þorvarður Þorvarðarson 1962-. Fjárveitingar til heilbrigðis- og menntamála árin 2000 til 2008 : samanburður á fjárveitingum til Landspítala og Háskóla Íslands. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3666