{"id":{"repo_id":"bifrost","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/3661"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/bifrost/oai:skemman.is:1946/3661","repository":{"repo_id":"bifrost","name":"Bifröst University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Stjórnun sjúkrahúsa : aðferðir til að auka gæði og lækka kostnað","abstract":"Aðferðir til að auka gæði þjónustu og lækka kostnað eru veigamikill þáttur í stjórnun sjúkrahúsa. Lean, ein tegund gæðastjórnunar, hefur mætt þessum þáttum á sjúkrahúsum víðsvegar um heim. Grundvallaratriði Lean er fyrirtækjamenning þar sem vinna er skoðuð beint, sóun er útrýmt kerfisbundið, vinna er stöðluð, vandamál eru leyst á kerfisbundin hátt og fyrirtæki eru gerð að lærdómsfyrirtæki. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar og engar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi á því hvaða aðferðir forstjórar sjúkrahúsa nota til auka gæði þjónustunnar og lækka kostnað. Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í stjórnun sjúkrahúsa og dýpka skilning á aðferðum sem auka skilvirkni og gæði þjónustu á sjúkrahúsum. Rannsóknin leitar svara við því hvaða aðferðir stjórnendur á sjúkrahúsum á Íslandi nota og hvernig þær gagnist við að auka gæði þjónustu og lækka kostnað. Ítarlega er fjallað um hvað vinnist með aðferðum Lean á sjúkrahúsum og hvernig hentugt væri að standa að innleiðingu Lean á sjúkrahúsum. Aðferð rannsóknar var eigindleg og byggði á hálfstöðluðum sérfræðiviðtölum. Gögnum var safnað með samtölum við fjóra forstjóra sjúkrahúsa á Íslandi og framkvæmdastjóra yfir stefnumótun og gæðastjórnun á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum meginþemum. Fyrsta þemað snýr að forystu, annað að menningu, hið þriðja að stjórnunaraðferðum og fjórða að Alþingi og stefnubreytingum. Forstjórar sjúkrahúsa eru bundnir fjárlögum og tíðum stefnubreytingum í pólitík sem getur torveldað þeim langtíma stefnumörkun. Forstjórar sjúkrahúsa nota blandaðar aðferðir við stjórnun. Þeir nefna Balanced Scorecard, New Public Management og Landspítalamódelið. Viðmælandi frá Háskólasjúkrahúsinu í Lundi talaði um að nota Lean með góðum árangri. Gott upplýsingaflæði, virðing fyrir fólki, skipulögð vinnuferli og endurmenntun voru þættir sem viðmælendur töldu mikilvæga til að auka gæði þjónustu. Rafræn sjúkraskrá, sameiningar, uppsagnir og minni yfirvinna voru meðal þess sem viðmælendur töldu lækka kostnað. Helstu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum eru þær að stjórnendur sjúkrahúsa þurfa að leiða með fordæmi og sýna að menning umbóta nái í efstu stöður. Vísindalegar stjórnunaraðferðir, aðferðir sem hafa þróast í áranna rás og hafa verið slípaðar til, og sannreyndar í fyrirtækjum við góðan orðstír eru stjórnunaraðferðir sem velja ætti í stjórnun sjúkrahúsa, Lean er gott dæmi um slíka aðferð. Lykilhugtök: Lean, umbætur, skilvirkni, gæði, menning, stöðlun, kostnaður, gæðastjórnun.","abstract_html":"Aðferðir til að auka gæði þjónustu og lækka kostnað eru veigamikill þáttur í stjórnun sjúkrahúsa. Lean, ein tegund gæðastjórnunar, hefur mætt þessum þáttum á sjúkrahúsum víðsvegar um heim. Grundvallaratriði Lean er fyrirtækjamenning þar sem vinna er skoðuð beint, sóun er útrýmt kerfisbundið, vinna er stöðluð, vandamál eru leyst á kerfisbundin hátt og fyrirtæki eru gerð að lærdómsfyrirtæki. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar og engar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi á því hvaða aðferðir forstjórar sjúkrahúsa nota til auka gæði þjónustunnar og lækka kostnað. Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í stjórnun sjúkrahúsa og dýpka skilning á aðferðum sem auka skilvirkni og gæði þjónustu á sjúkrahúsum. Rannsóknin leitar svara við því hvaða aðferðir stjórnendur á sjúkrahúsum á Íslandi nota og hvernig þær gagnist við að auka gæði þjónustu og lækka kostnað. Ítarlega er fjallað um hvað vinnist með aðferðum Lean á sjúkrahúsum og hvernig hentugt væri að standa að innleiðingu Lean á sjúkrahúsum. Aðferð rannsóknar var eigindleg og byggði á hálfstöðluðum sérfræðiviðtölum. Gögnum var safnað með samtölum við fjóra forstjóra sjúkrahúsa á Íslandi og framkvæmdastjóra yfir stefnumótun og gæðastjórnun á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum meginþemum. Fyrsta þemað snýr að forystu, annað að menningu, hið þriðja að stjórnunaraðferðum og fjórða að Alþingi og stefnubreytingum. Forstjórar sjúkrahúsa eru bundnir fjárlögum og tíðum stefnubreytingum í pólitík sem getur torveldað þeim langtíma stefnumörkun. Forstjórar sjúkrahúsa nota blandaðar aðferðir við stjórnun. Þeir nefna Balanced Scorecard, New Public Management og Landspítalamódelið. Viðmælandi frá Háskólasjúkrahúsinu í Lundi talaði um að nota Lean með góðum árangri. Gott upplýsingaflæði, virðing fyrir fólki, skipulögð vinnuferli og endurmenntun voru þættir sem viðmælendur töldu mikilvæga til að auka gæði þjónustu. Rafræn sjúkraskrá, sameiningar, uppsagnir og minni yfirvinna voru meðal þess sem viðmælendur töldu lækka kostnað. Helstu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum eru þær að stjórnendur sjúkrahúsa þurfa að leiða með fordæmi og sýna að menning umbóta nái í efstu stöður. Vísindalegar stjórnunaraðferðir, aðferðir sem hafa þróast í áranna rás og hafa verið slípaðar til, og sannreyndar í fyrirtækjum við góðan orðstír eru stjórnunaraðferðir sem velja ætti í stjórnun sjúkrahúsa, Lean er gott dæmi um slíka aðferð. Lykilhugtök: Lean, umbætur, skilvirkni, gæði, menning, stöðlun, kostnaður, gæðastjórnun.","abstract_has_math":false,"creators":["Anna María Malmquist 1966-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn á Bifröst"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2009,"date_issued":"2009-09-23T15:14:56Z","date_published":"2009-09-23T15:14:56Z","updated_at":"2026-07-27T18:50:45Z","subjects":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Stjórnun","Gæðastjórnun"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/3661","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn á Bifröst"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Anna María Malmquist 1966-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2009-09-23T15:14:56Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2009-09-23T15:14:56Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2009-09-23T15:14:56Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Stjórnun","Gæðastjórnun"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/3661"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Aðferðir til að auka gæði þjónustu og lækka kostnað eru veigamikill þáttur í stjórnun sjúkrahúsa. Lean, ein tegund gæðastjórnunar, hefur mætt þessum þáttum á sjúkrahúsum víðsvegar um heim. Grundvallaratriði Lean er fyrirtækjamenning þar sem vinna er skoðuð beint, sóun er útrýmt kerfisbundið, vinna er stöðluð, vandamál eru leyst á kerfisbundin hátt og fyrirtæki eru gerð að lærdómsfyrirtæki. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar og engar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi á því hvaða aðferðir forstjórar sjúkrahúsa nota til auka gæði þjónustunnar og lækka kostnað. Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í stjórnun sjúkrahúsa og dýpka skilning á aðferðum sem auka skilvirkni og gæði þjónustu á sjúkrahúsum. Rannsóknin leitar svara við því hvaða aðferðir stjórnendur á sjúkrahúsum á Íslandi nota og hvernig þær gagnist við að auka gæði þjónustu og lækka kostnað. Ítarlega er fjallað um hvað vinnist með aðferðum Lean á sjúkrahúsum og hvernig hentugt væri að standa að innleiðingu Lean á sjúkrahúsum. Aðferð rannsóknar var eigindleg og byggði á hálfstöðluðum sérfræðiviðtölum. Gögnum var safnað með samtölum við fjóra forstjóra sjúkrahúsa á Íslandi og framkvæmdastjóra yfir stefnumótun og gæðastjórnun á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum meginþemum. Fyrsta þemað snýr að forystu, annað að menningu, hið þriðja að stjórnunaraðferðum og fjórða að Alþingi og stefnubreytingum. Forstjórar sjúkrahúsa eru bundnir fjárlögum og tíðum stefnubreytingum í pólitík sem getur torveldað þeim langtíma stefnumörkun. Forstjórar sjúkrahúsa nota blandaðar aðferðir við stjórnun. Þeir nefna Balanced Scorecard, New Public Management og Landspítalamódelið. Viðmælandi frá Háskólasjúkrahúsinu í Lundi talaði um að nota Lean með góðum árangri. Gott upplýsingaflæði, virðing fyrir fólki, skipulögð vinnuferli og endurmenntun voru þættir sem viðmælendur töldu mikilvæga til að auka gæði þjónustu. Rafræn sjúkraskrá, sameiningar, uppsagnir og minni yfirvinna voru meðal þess sem viðmælendur töldu lækka kostnað. Helstu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum eru þær að stjórnendur sjúkrahúsa þurfa að leiða með fordæmi og sýna að menning umbóta nái í efstu stöður. Vísindalegar stjórnunaraðferðir, aðferðir sem hafa þróast í áranna rás og hafa verið slípaðar til, og sannreyndar í fyrirtækjum við góðan orðstír eru stjórnunaraðferðir sem velja ætti í stjórnun sjúkrahúsa, Lean er gott dæmi um slíka aðferð. Lykilhugtök: Lean, umbætur, skilvirkni, gæði, menning, stöðlun, kostnaður, gæðastjórnun."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Stjórnun sjúkrahúsa : aðferðir til að auka gæði og lækka kostnað"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn á Bifröst"],"dc:creator":["Anna María Malmquist 1966-"],"dc:date.accessioned":["2009-09-23T15:14:56Z"],"dc:date.available":["2009-09-23T15:14:56Z"],"dc:date.issued":["2009-09-23T15:14:56Z"],"dc:description.abstract":["Aðferðir til að auka gæði þjónustu og lækka kostnað eru veigamikill þáttur í stjórnun sjúkrahúsa. Lean, ein tegund gæðastjórnunar, hefur mætt þessum þáttum á sjúkrahúsum víðsvegar um heim. Grundvallaratriði Lean er fyrirtækjamenning þar sem vinna er skoðuð beint, sóun er útrýmt kerfisbundið, vinna er stöðluð, vandamál eru leyst á kerfisbundin hátt og fyrirtæki eru gerð að lærdómsfyrirtæki. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar og engar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi á því hvaða aðferðir forstjórar sjúkrahúsa nota til auka gæði þjónustunnar og lækka kostnað. Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í stjórnun sjúkrahúsa og dýpka skilning á aðferðum sem auka skilvirkni og gæði þjónustu á sjúkrahúsum. Rannsóknin leitar svara við því hvaða aðferðir stjórnendur á sjúkrahúsum á Íslandi nota og hvernig þær gagnist við að auka gæði þjónustu og lækka kostnað. Ítarlega er fjallað um hvað vinnist með aðferðum Lean á sjúkrahúsum og hvernig hentugt væri að standa að innleiðingu Lean á sjúkrahúsum. Aðferð rannsóknar var eigindleg og byggði á hálfstöðluðum sérfræðiviðtölum. Gögnum var safnað með samtölum við fjóra forstjóra sjúkrahúsa á Íslandi og framkvæmdastjóra yfir stefnumótun og gæðastjórnun á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum meginþemum. Fyrsta þemað snýr að forystu, annað að menningu, hið þriðja að stjórnunaraðferðum og fjórða að Alþingi og stefnubreytingum. Forstjórar sjúkrahúsa eru bundnir fjárlögum og tíðum stefnubreytingum í pólitík sem getur torveldað þeim langtíma stefnumörkun. Forstjórar sjúkrahúsa nota blandaðar aðferðir við stjórnun. Þeir nefna Balanced Scorecard, New Public Management og Landspítalamódelið. Viðmælandi frá Háskólasjúkrahúsinu í Lundi talaði um að nota Lean með góðum árangri. Gott upplýsingaflæði, virðing fyrir fólki, skipulögð vinnuferli og endurmenntun voru þættir sem viðmælendur töldu mikilvæga til að auka gæði þjónustu. Rafræn sjúkraskrá, sameiningar, uppsagnir og minni yfirvinna voru meðal þess sem viðmælendur töldu lækka kostnað. Helstu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum eru þær að stjórnendur sjúkrahúsa þurfa að leiða með fordæmi og sýna að menning umbóta nái í efstu stöður. Vísindalegar stjórnunaraðferðir, aðferðir sem hafa þróast í áranna rás og hafa verið slípaðar til, og sannreyndar í fyrirtækjum við góðan orðstír eru stjórnunaraðferðir sem velja ætti í stjórnun sjúkrahúsa, Lean er gott dæmi um slíka aðferð. Lykilhugtök: Lean, umbætur, skilvirkni, gæði, menning, stöðlun, kostnaður, gæðastjórnun."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/3661"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Heilbrigðisþjónusta","Stjórnun","Gæðastjórnun"],"dc:title":["Stjórnun sjúkrahúsa : aðferðir til að auka gæði og lækka kostnað"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:50:45Z"}