Abstract
dc:description.abstractByggingariðnaður hefur aukist á undanförnum árum og sveinum í rafvirkjun fjölgað jafnt og þétt. Ný tækifæri hafa skapast og áherslur á rafverktaka markaði breyst. Megintilgangur verkefnisins var að búa til markaðsáætlun fyrir nýtt fyrirtæki á íslenskum rafverktaka markaði. Markaðsáætlunin er samansett af fimmtán aðskildum köflum en hún hefst á fræðilegum bakgrunni þar sem fjallað er um helstu hugtök sem notuð voru við gerð verkefnisins t.d. fimm krafta líkan Porter‘s, SVÓT og PESTLE. Aðferðafræðin sem nýtt var við gerð verkefnisins var sex þrepa líkan Philips Kotler og Kevin Lane Kellar. Fjallað var um fyrirtækið og aðgreiningu þess frá núverandi samkeppnisaðilum, innri og ytri greining framkvæmd þar sem markaðurinn var skilgreindur sem og markaðs aðstæður. Eigindleg rannsókn var framkvæmd til að efla skilning höfundar á markaðnum sem og til að kynnast áætlunum eiganda fyrirtækisins, hvernig hann sér það fyrir sér og hvernig markaðssetningu hann vill fara út í. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að samkeppnisaðilar voru fáir á markaðnum og aðeins var eitt fyrirtæki sem bauð upp á nákvæmlega sömu þjónustu á markaðnum. Áhrifaþættir í ytra umhverfi geta einnig haft mjög mikil áhrif á fyrirtækið t.d. öll þau leyfi og samþykktir frá Mannvirkjastofnun sem fyrirtækið þarf að búa yfir. Eldgos getur einnig haft mikil áhrif á markaðinn í heild sinni og sökum öskufalls geta síubirgðir klárast á landinu ef flugsamgöngur skerðast, hefur þetta áhrif á öll fyrirtæki sem starfa á rafverktaka markaðnum. Mikilvægt er fyrir fyrirtækið að sérhæfa sig en við það minnkar fjöldi beinna samkeppnisaðila á markaðnum. Framtíðarhorfur eru þó nokkuð bjartar fyrir fyrirtækið þar sem mörg tækifæri liggja í markaðnum með áframhaldandi tækniframförum og veðurfarsbreytingum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Viktor Örn Guðmundsson 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35041
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35041