Back to results

Bifröst University

Hinn nýi svaladrykkur? Ímynd orkudrykkja á Instagram

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða ímynd orkudrykkja á Instagram. Neysla orkudrykkja hefur sprungið út á síðustu árum og eru drykkirnir sérstaklega vinsælir hjá ungu fólki. Instagram þótti hentugur miðill til að skoða ímynd orkudrykkjanna þar sem markaðssetning þeirra fer að miklu leyti fram í gegnum miðilinn og einnig vegna þess hve vinsæll miðillinn er hjá unglingum og ungu fólki. Í rannsókninni voru Instagram reikningar fjögurra vinsællra orkudrykkjategunda innihaldsgreindir. Áhugavert var að skoða hvaða skilaboð orkudrykkjategundirnar eru að senda í gegnum Instagram og hvaða áhrif þau gætu haft á unglinga. Niðurstöðurnar benda til þess að ímynd orkudrykkja á Instagram sé af nokkurskonar ferskum heilsudrykk sem auki orku. Drykkirnir voru oft tengdir við heilsu og íþróttaiðkun/æfingar og voru oftast auglýstir af íþróttafólki en einnig voru þeir stundum auglýstir af venjulegum áhrifavöldum. Þá var orkudrykkjunum gjarnan lýst sem ferskum og svalandi drykkjum sem ættu að geta svalað þorsta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jenný Harðardóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35024
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35024

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jenný Harðardóttir 1992-. Hinn nýi svaladrykkur? Ímynd orkudrykkja á Instagram. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35024