Bifröst University
Tónlistarsamfélagið í Hafnarfirði : „það er kannski meira attitjúd heldur en sánd“
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð verður sjónum beint að tónlistarsamfélaginu í Hafnarfirði, sögu þess og hefðum. Áhrif samfélagsfrumkvöðla á tónlist og tónlistarsamfélagið verða skoðuð og hver þróun þess samfélags hefur verið. Menningarstefna bæjarins verður tekin til athugunar, farið verður yfir hver tækifæri ungs tónlistafólks eru í Hafnarfirði og tillögur lagðar fram um hvernig hlúa megi að grasrótinni í framtíðinni. Viðtöl voru tekin við fjóra viðmælendur og reynsla þeirra og upplifun borin saman við fræðilegan bakgrunn verkefnisins. Niðurstöðurnar gefa til kynna ríka tónlistarhefð í Hafnarfirði frá byggð bæjarins. Tónlistarsamfélagið hefur þróast í gegnum árin og hefðirnar með. Mikið framboð og auðveldur aðgangur að tónlist gefur fólki minna tilefni til að fara út til að hlusta á tónlist. Tónlistarsköpun hefur með betri tækni fært sig í heimahús og því minni eftirspurn eftir æfingarhúsnæðum. Færri tónleikastaðir bjóða upp á áskoranir fyrir tónlistarsamfélagið í dag en í Hafnarfirði vantar fleiri staði fyrir ungt fólk til að koma fram á. Menningarstefna bæjarins er komin til ára sinna og er ekki með viðmið um hvernig henni er ætlað að uppfylla markmið sín.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kjartan Bragi Bjarnason 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32484
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32484