Bifröst University
„Annað hvort stundarðu almannatengsl á samfélagsmiðlum eða ekki" : lykilþættir árangurs þegar kemur að almannatengslum og samfélagsmiðlum
Abstract
dc:description.abstractAlmannatenglar hafa lengi stuðist við fjölmiðla til að koma skilaboðum áleiðs til almennings. Með tilkomu samfélagsmiðla og almannaeignar á snjallsímum hafa opnast ný tækifæri í samskiptum og miðlun upplýsinga. Markmiðið rannsóknarinnar er að leitast eftir lykilþáttum til árangurs þegar kemur að almannatengslum og samfélagmiðlum. Þá er einnig ætlunin að skoða breytingar sem hafa átt sér stað á starfsvettvangi almannatengsla í kjölfar þróunar samfélagsmiðla og hvernig almannatenglar nýta sér samfélagsmiðla við dagleg störf. Rannsóknarefnið hefur ekki verið rannsakað mikið hér á landi svo vitað sé. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Stuðst var við fræðilegt efni er tengist almannatengslum, netinu og samfélagsmiðlum, auk fyrri rannsókna er snúa að viðfangsefninu. Tekin voru sex viðtöl við starfandi almannatengla. Þemaskipt greining var notuð við úrvinnslu gagna. Helstu niðurstöður gefa til kynna að samfélagsmiðlar hafi veiklað fjölmiðla. Almannatenglar vinna að forvarnarvinnu með fyrirtækjum svo að þau rati ekki í vandræði og lykilatriði er að vera vakandi yfir samfélagsmiðlum því hraðinn er mikill og það þarf að bregðast skjótt við ef neikvæðar raddir láta á sér bera. Samfélagsmiðlar eru helst góðir fyrir þær sakir að efni getur náð betri dreifingu, þeir eru auðmælanlegir og það er hægt að eiga í nánara samtali við almenning.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kamilla Dögg Guðmundsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32483
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32483