Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi snýr að krísustjórnun United Silicon. Leitað er svara við því hvaða aðferðir fyrirtækið notaði til þess að takast á við þá krísu sem það stóð frammi fyrir ef horft er til þess hvernig viðbrögð þeirra birtust í fjölmiðlum. Gerð er aftursæ tilviksrannsókn þar sem skoðaðar eru blaðagreinar frá því að verksmiðja fyrirtækisins var ræst 13. nóvember 2016 og til 22. janúar 2018 þegar lögð var inn beiðni um gjaldþrot. Atburðarrásin eins og hún birtist í fjölmiðlum, er listuð upp ásamt því að greind eru viðbrögð fyrirtækisins. Eigindleg viðtöl voru tekin við þrjá sérfræðinga í almannatengslum til þess að fá innsýn í viðbrögð þeirra við sambærilegum aðstæðum. Hugtökin krísa, krísustjórnun, haghafar og samfélagsleg ábyrgð eru greind í fræðilegum kafla verkefnisins. Fyrri krísur og líkön í krísustjórnun eru einnig skoðuð. Krísustjórnunar kenningarnar SCCT- Situational crisis communication theory og IRT-Image restoration theory eru skoðaðar sérstaklega. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að fyrirtækið reyndi einna helst að gera sem minnst úr þeirri krísu sem það stóð frammi fyrir. Sérfræðingarnir sem rætt var við voru nokkuð samstíga í því hver viðeigandi viðbrögð eru í sambærilegum atvikum og var álit þeirra ekki í samræmi við þau viðbrögð sem fyrirtækið sýndi. Fyrstu viðbrögð fyrirtækisins í upphafi krísunnar voru viðeigandi ef horft er til kenninga fræðimanna. Hins vegar voru viðbrögð fyrirtækisins við síendurteknum vandamálum önnur en þau viðbrögð sem fræðimenn mæla með í sínum kenningum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elín Jóhannsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32479
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32479