Back to results

Bifröst University

Skiptu viðbrögðin máli? Krísustjórnun United Silicon

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi snýr að krísustjórnun United Silicon. Leitað er svara við því hvaða aðferðir fyrirtækið notaði til þess að takast á við þá krísu sem það stóð frammi fyrir ef horft er til þess hvernig viðbrögð þeirra birtust í fjölmiðlum. Gerð er aftursæ tilviksrannsókn þar sem skoðaðar eru blaðagreinar frá því að verksmiðja fyrirtækisins var ræst 13. nóvember 2016 og til 22. janúar 2018 þegar lögð var inn beiðni um gjaldþrot. Atburðarrásin eins og hún birtist í fjölmiðlum, er listuð upp ásamt því að greind eru viðbrögð fyrirtækisins. Eigindleg viðtöl voru tekin við þrjá sérfræðinga í almannatengslum til þess að fá innsýn í viðbrögð þeirra við sambærilegum aðstæðum. Hugtökin krísa, krísustjórnun, haghafar og samfélagsleg ábyrgð eru greind í fræðilegum kafla verkefnisins. Fyrri krísur og líkön í krísustjórnun eru einnig skoðuð. Krísustjórnunar kenningarnar SCCT- Situational crisis communication theory og IRT-Image restoration theory eru skoðaðar sérstaklega. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að fyrirtækið reyndi einna helst að gera sem minnst úr þeirri krísu sem það stóð frammi fyrir. Sérfræðingarnir sem rætt var við voru nokkuð samstíga í því hver viðeigandi viðbrögð eru í sambærilegum atvikum og var álit þeirra ekki í samræmi við þau viðbrögð sem fyrirtækið sýndi. Fyrstu viðbrögð fyrirtækisins í upphafi krísunnar voru viðeigandi ef horft er til kenninga fræðimanna. Hins vegar voru viðbrögð fyrirtækisins við síendurteknum vandamálum önnur en þau viðbrögð sem fræðimenn mæla með í sínum kenningum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Jóhannsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32479
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32479

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Jóhannsdóttir 1986-. Skiptu viðbrögðin máli? Krísustjórnun United Silicon. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32479