Back to results

Bifröst University

Markaðsgreining Akish

Abstract

dc:description.abstract

Akish er óstofnuð netverslun á íslenskum snyrtivörumarkaði sem mun selja breitt vöruúrval af lífrænum, vegan og umhverfisvænum snyrtivörum. Rannsóknin er tvíþætt. Annars vegar er gerð markaðsrannsókn í formi spurningalista þar sem fundinn er markhópur og markaðsleg staðfærsla Akish. Hins vegar er snyrtivörumarkaðurinn skoðaður út frá ýmsum markaðslegum aðferðafræðum. Leitast verður við að svara rannsóknarspurningunni; - Er markaður fyrir lífrænar snyrtivörur á íslenskum markaði? Snyrtivörumarkaðurinn er greindur útfrá fyrirliggjandi gögnum um markaðinn ásamt niðurstöðum úr markaðsrannsókninni sem notuð eru til að greina nær og fjær umhverfi markaðarins. Í lokin verða niðurstöður markaðsgreiningarinnar teknar saman í SVÓT greiningu fyrir Akish. Í markaðsrannsókninni var notast við snjóboltaúrtak og var spurningalistinn sendur út á Facebook. Gögnum var safnað á tímabilinu 6. nóvember – 10. nóvember 2018. Niðurstöður voru greindar með tilliti til fræðanna og fundinn var markhópur Akish og markaðsleg staðfærsla fyrirtækisins gerð. Niðurstöður markaðsrannsóknar sýna að markhópur Akish eru umhverfis- og dýraverndunarsinnaðir einstaklingar á aldrinum 21-40 ára sem kjósa fjölbreytt vöruúrval lífrænna snyrtivara þar sem það fer betur með umhverfið. Einnig er mjög mikilvægt fyrir þessa einstaklinga að snyrtivörurnar séu ekki prófaðar á dýrum. Akish býður upp á fjölbreytt vöruúrval lífrænna snyrtivara sem skaða hvorki húðina né umhverfið ásamt því að vera 100% vegan. Lífrænar snyrtivörur eru gerðar úr auðlindum jarðarinnar og innihalda því engin kemísk efni. Þar af leiðandi henta þær einstaklega vel fyrir viðkvæma húð. Niðurstöður úr markaðsgreiningunni sýna að mikil nýsköpun er á snyrtivörumarkaði, bæði vegna aukinnar tæknivæðingar ásamt fjölbreytileika neytenda. Markaðurinn býður því upp á mikil tækifæri fyrir ný fyrirtæki á markaðinum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Björk Kristjánsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32407
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32407

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Björk Kristjánsdóttir 1995-. Markaðsgreining Akish. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32407