Bifröst University
Íslensk húsnæðisstefna : af hverju þróaðist íslensk húsnæðisstefna öðruvísi en á hinum Norðurlöndunum?
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er á sviði hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði og í henni er ætlunin að skoða muninn á húsnæðiskerfum norðurlandanna og þá sérstaklega af hverju Ísland hefur farið aðra leið en þau lönd sem hingað til hefur helst verið leitað til að fyrirmyndum, Danmerkur og Svíþjóðar. Til byrja með verður farið yfir hvað helst einkennir húsnæðiskerfi hinna norðurlandanna. Þegar því er lokið verður farið yfir hvernig mál hafa þróast á Íslandi en hér hefur séreignastefnan verið allsráðandi. Farið verður yfir hvernig stjórnmálin hafa litað þá ákvörðun að fara séreignarleiðina og hver munurinn er á hvernig flokkar hafa verið við völd á Ísland og hinum norðurlöndunum, bæði í landsmálum og höfuðborgum landanna. Aðeins verður minnst á verkamannabústaðina en þeir eru ágætt dæmi um hvernig Íslendingar hafa tekið upp hugmyndir frá öðrum löndum en sérsniðið þær eftir sínu höfði. Þá verður farið yfir kosti og galla séreignastefnunnar en hún er langt í frá fullkomin frekar en önnur mannanna verk. Yfirferðinni líkur svo með umfjöllun um leigumarkaðinn og stöðu leigjenda sem neytendur á Íslandi samanborið við hin norðurlöndin og hvernig viðhorf stjórnvalda gagnvart leigjendum kristallast í stóru skuldaleiðréttingunni sem farið var í eftir hrun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurður Guðmundsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31520
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31520