Bifröst University
Almannatengsl á Internetinu : er ný samskiptatækni að breyta almannatengslum?
Abstract
dc:description.abstractMeð tilkomu nýrrar samskiptatækni er notkun almannatengsla að taka á sig breytta mynd og þar með gjörbreytist vinnuumhverfi þeirra. Fyrirtæki sem og aðrir aðilar þurfa að notast við þá tækni sem er til á hverri stundu. Allt fram til aldamóta voru prent- og ljósvakamiðlar notaðir til þess að koma skilaboðum áleiðis til almennings. Í dag hafa ný stafræn samskiptatæki ásamt nýrri tækni opnað fyrir önnur tækifæri. Markmiðið með þessari rannsókn er því að kanna hvort að Internetið sé mikilvægt tól til almannatengsla og hvort að ný samskiptatækni sé að breyta almannatengslum. Þá er þessi rannsókn einnig viðbót við aðferðir almannatengsla þar sem ætlunin er að skoða hvort aðstæður, tilefni og skilyrði almannatengsla séu að breytast með tilkomu nýrrar samskiptatækni. Þar sem um eigindlega rannsókn er að ræða verður stuðst við þá rannsóknaraðferð sem miðar að því að fá dýpri skilning á viðfangsefninu með því að taka viðtöl við aðila sem hafa reynslu og þekkingu á því sem um ræðir. Verkefnið verður einnig byggt á ritrýndum greinum og bókum sem gera viðfangsefninu góð skil. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að Internetið er orðið mikilvægt tól til almannatengsla. Þá hafa einnig orðið breytingar á vinnuumhverfi almannatengsla með tilkomu aukinnar tæknivæðingar hvað samskipti varðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Maria Joao De Jesus Neves 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31519
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31519