Bifröst University
Hvernig tók Icelandair á verkfalli flugvirkja út frá sjónarmiði almannatengilsins?
Abstract
dc:description.abstractJólin eru að marga mati besti tími ársins. Fólk fær frí úr vinnu, borðar yfir sig af óhollum mat og eyðir flestum stundum með fjölskyldu og ástvinum. Þegar flugvirkjar Icelandair fóru í verkfall þann 17. desember 2017 hafði það áhrif á þúsundir manna um heim allan. Aðfluttir Íslendingar tóku þessu mjög persónulega og sökuðu flugvirkjana um græðgi. Flugfarþegar sem aðeins áttu að millilenda á Keflavíkurflugvelli áður en haldið var heim sátu fastir tímunum saman án nokkurra upplýsinga frá forsvarsmönnum Icelandair. Markmið þessa verkefnis var að svara rannsóknarspurningunni „Hvernig tók Icelandair á verkfalli flugvirkja út frá sjónarmiði almannatengilsins?”. Til að svara henni skoðaði ég hvernig stóð á upplýsingagjöf til almennings, hvernig umræðan var á samfélagsmiðlum og hvar mistökin lágu. Gerð var tilviksrannsókn á viðbrögðum Icelandair út frá fræðum almannatengsla. Þau gögn sem voru greind með þeim hætti voru gögn sem birtust á fréttamiðlum, samfélagsmiðlum og vefsvæðum annarra fyrirtækja. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að upplýsingagjöf Icelandair var ábótavant. Hægt var að draga úr þeim orðssporsskaða sem fyrirtækið varð fyrir. Rannsakandi telur að Icelandair hafi spilað vörn í stað sóknar allan tímann.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Linda Hrönn Hermannsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31518
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31518