Back to results

Bifröst University

Hvað með mig? Vilji barns í umgengnismáli

Abstract

dc:description.abstract

Þegar rætt er um umgengnismál er þá oftar en ekki að umræðan snýr að deilumáli foreldra, en ekki stöðu barns. Umræðan er oft einhliða og blásin upp í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum, sem verður að gróðrarstíu af hatri og ágreiningi. Einhliða umræða er oftast hlið annars foreldris sem stendur í deilumálinu, en hver er vilji barnsins sem deilan snýst um? Markmið ritgerðar þessarar er að draga fram hvort og hvenær barni er veitt tækifæri á að láta í ljós skoðanir sínar í umgengnismáli. Lagaákvæðin eru skýr um að barn hafi rétt til að koma á framfæri skoðunum sínum, einnig eru lagaákvæðin skýr um að ávalt beri að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi. Vilji barns og hagsmunir þess fara þó ekki alltaf saman. Niðurstöður sýna að í dómsmálum er oft leitað eftir vilja barns í máli, oft eru kvaddir til matsmenn sem ræða við barn sem náð hefur aldri og þroska til að geta tjáð sig og metið er hver vilji barns raunverulega er. Vegna annmarka ritgerðar er óljóst hvort barni er veitt sama tækifæri á að tjá vilja sinn í umgengnismálum sem ljúka hjá sýslumannsembætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karitas Bergsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29759
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29759

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karitas Bergsdóttir 1983-. Hvað með mig? Vilji barns í umgengnismáli. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29759