Back to results

Bifröst University

Krísa - ógn og tækifæri : eru lítil og meðalstór íslensk einkafyrirtæki undirbúin fyrir krísur?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni eru fræði krísustjórnunar skoðuð og vísbendinga leitað um hvort lítil og meðalstór einkafyrirtæki eru undirbúin fyrir krísur. Í fyrri hluta eru helstu hugtökum gerð skil, ásamt því að rýna í fræðin og kenningar á sviði krísa, krísustjórnunar og krísuáætlanagerða í rekstri fyrirtækja. Sérstök áhersla er lögð á lítil og meðalstór fyrirtæki og því varpað fram hvort innleiðing krísustjórnunar ætti að vera hluti af samfélagslegri ábyrgð þeirra. Þá er fjallað um nokkrar fyrri rannsóknir á þessu sviði sem unnar hafa verið bæði hér á landi og erlendis. Í síðari hluta er farið í framkvæmd og niðurstöður megindlegrar rannsóknar. Með rannsókninni er leitast við að kanna hvar lítil og meðalstór íslensk einkafyrirtæki standa þegar kemur að undirbúningi fyrir krísur, stöðu krísustjórnunar og skráðra krísuáætlana. Eftirfarandi rannsóknarspurning er lögð til grundvallar: Eru lítil og meðalstór íslensk einkafyrirtæki undirbúin fyrir krísur? Þátttakendur rannsóknarinnar voru 23 stjórnendur íslenskra einkafyrirtækja. Rúmur helmingur fyrirtækja sem svarað var fyrir hafa þurft að kljást við krísu á undanförnum árum. Þó hefur einungis um fjórðungur fyrirtækja innleitt krísuáætlun. Að lokum er fræðileg umfjöllun og kenningar bornar saman við niðurstöður rannsóknar. Ein meginniðurstaða rannsakanda er að ef horft er á svörun rannsóknar út frá leiðbeiningum krísustjórnunarfræða standa fyrirtækin ekki vel að vígi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Magnúsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29750
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29750

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Magnúsdóttir 1986-. Krísa - ógn og tækifæri : eru lítil og meðalstór íslensk einkafyrirtæki undirbúin fyrir krísur?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29750