Back to results

Bifröst University

Jarðhitaböð í Stykkishólmi

Abstract

dc:description.abstract

Framkvæmd var rannsókn meðal ferðamanna í Stykkishólmi í sumarlok 2017. Viðfangsefnið var að kanna viðhorf ferðamanna til hugsanlegra jarðhitabaða á svæðinu og hvort þau myndu hafa áhrif á ferðahegðun þeirra. Mikið af heitu vatni fannst við Hofstaði 1997, sem er bær rétt við Stykkishólm. Vatnið var nýtt til hitaveitu í Stykkishólmi og nágrenni. Eiginleikar vatnsins þykja einstakir samkvæmt rannsókn dr. Hrefnu Kristmannsdóttur jarðvísindamanns en vatninu svipar til vatnsins í Baden Baden heilsuböðunum í Þýskalandi. Stuðst var m.a. við hugtök tengd heilsuferðamennsku en heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta er nýleg ferðaþjónustugrein hér á landi, sem vaxið hefur ört undanfarin ár. Höfundur taldi einnig mikilvægt að kanna hvað orsakar vinsældir áfangastaða en með markhópagreiningu, þ.e. greiningu á samsetningu ferðamanna, fást m.a. upplýsingar um hvers vegna ferðamenn velja einn stað fremur en annan. Unnið var með blandaða rannsóknaraðferð, megindlega og eigindlega. Spurningakönnun var lögð fyrir 120 ferðamenn sem gistu á hótelum í Stykkishólmi í lok ágúst 2017, 97 svör bárust. Þrjú viðtöl voru tekin við fólk með sérþekkingu á ferðaþjónustugreininni. Helstu niðurstöður leiddu í ljós mikinn áhuga ferðamanna á jarðhitaböðum og töldu flestir líklegt að þeir myndu lengja dvöl sína væru þau í boði í og við Stykkishólm. Einnig fengust upplýsingar um hvaða afþreying ferðamönnum líkaði á svæðinu auk upplýsinga um þjóðerni, aldur og menntun. Viðmælendur voru sammála um að flestir ferðamenn vilja upplifa íslensk jarðhitaböð en markaðssetning áfangastaða og samstarf ferðaþjónustuaðila er lykilatriði í þróun nýrra áfangastaða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Steinsson 1963-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29745
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29745

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Steinsson 1963-. Jarðhitaböð í Stykkishólmi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29745