Back to results

Bifröst University

Eru kínverskir og japanskir ferðamenn ákjósanlegir markhópar fyrir íslenska ferðaþjónustu?

Abstract

dc:description.abstract

Fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi, þar á meðal kínverskra og japanskra, hefur verið mikil á seinustu árum og þurfa upplýsingar um þessa ferðamenn að aukast í samræmi við vöxtinn. Í rannsókninni var farið yfir markhópa og áherslur í íslenskri ferðaþjónustu, kínverska og japanska ferðamenn á Íslandi út frá áherslum rannsóknarinnar og menningarmun á Íslandi, Kína og Japan sem hefur áhrif á ferðavenjur. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að fjölgun kínverskra ferðamanna er meiri en japanskra þó ferðamönnum úr báðum hópum fjölgi ört. Þessir ferðamenn eru líkir að því leyti að þeir koma til landsins jafnt á lágönn sem og háönn og dvelja að meðaltali á landinu í 5-7 daga. Þessir ferðamenn dvelja helst á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring og vilja ferðast sjálfir á bílaleigubíl eða í hópum. Þeir eiga það sameiginlegt að eyða mestu í skoðunarferðir en japanskir ferðamenn eyða einnig miklu í minjagripi, mat og vín á meðan kínverskir ferðamenn eyða litlu í mat og kaupa frekar dýrari merkjavörur. Mikill menningarmunur er á milli Íslands, Kína og Japan og eru kínverskir og japanskir ferðamenn mjög ólíkir í ferðahegðun þar sem þeir koma frá ólíkum menningarheimum. Þetta eru ferðamenn sem nýtast íslenskri ferðaþjónustu vel að því leyti að þeir stuðla að aukinni dreifingu á komu erlendra ferðamanna yfir árið og lengingu ferðatímabilsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Ásta Harðardóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29702
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29702

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Ásta Harðardóttir 1987-. Eru kínverskir og japanskir ferðamenn ákjósanlegir markhópar fyrir íslenska ferðaþjónustu?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29702