Back to results

Bifröst University

Afleiður til áhættuvarna og íslenskur peningamarkaður

Abstract

dc:description.abstract

Afleiður til áhættuvarna & íslenskur peningamarkaður er heiti skýrslunnar og er rannsóknaspurningin eftirfarandi: er gagnlegt að verja útgjöldum í erlendri mynt með framvirkum samningum? Svo unnt sé að komast að því mun skýrsluhöfundur kynna fyrir lesendum helstu hugtök sem tengjast afleiðuviðskiptum, áhættuvörnum og millibankamarkaði. Skýrslan er skrifuð með það í huga að lesandi hafi ekki sérþekkingu á viðfangsefninu og er uppsetning hennar þannig að lesandinn ætti að öðlast grunnþekkingu á viðfangsefninu við lestur hennar. Í skýrslunni er farið yfir helstu tegundir afleiðna og hvernig slík viðskipti fara fram, einnig er farið yfir sögu millibankamarkaðs á Íslandi og helstu hugtök á þeim vettvangi. Hlutverk Seðlabanka Íslands er skoðað og eins peningastefna hans, jafnt nú sem áður fyrr. Í kjölfar þeirrar umfjöllunar metur skýrsluhöfundur hvort skilvirkur millibankamarkaður hafi verið starfandi hér á landi á árunum 2002-2007. Einnig kemur fram skilgreining á hvernig afleiðusamningar eru færðir í bókhald fyrirtækja og ársreikninga samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, samhliða því er fjallað um gengishagnað og gengistap og metur skýrsluhöfundur hvort áhættuvarnir hafi verið á gráu svæði í vissum tilvikum. Heimildaöflun var með þeim hætti að vitnað var í fræðibækur um viðfangsefnið, ýmis rit frá fjármálafyrirtækjum var stuðst við, internetið var einnig notað við heimildaöflun og að lokum voru munnlegar heimildir fengnar frá fjórum starfsmönnum Glitnis banka hf. (nú Íslandsbanki) sem hafa sérþekkingu á viðfangsefninu. Munnlegum heimildum var aflað þannig að skýrsluhöfundur sat tvo sextíu mínútna fundi með öllum fjórum einstaklingunum. Að ósk þeirra er ekkert haft beint eftir þeim en þeirra er engu að síður getið í heimildaskrá ásamt hvaða stöðu þeir gegna/gengdu

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingi Fannar Eiríksson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2945
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2945

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingi Fannar Eiríksson 1979-. Afleiður til áhættuvarna og íslenskur peningamarkaður. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2945