Back to results

Bifröst University

Áhrif þjóðmenningar á útrás íslenskra fyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Þáttur þjóðmenningar í útrás íslenskra fyrirtækja hefur lítið verið rannsakaður hér á landi. Erlendis hafa verið framkvæmdar viðamiklar rannsóknir á þessum þætti alþjóðavæðingarinnar og eru skiptar skoðanir á mikilvægi hans. Íslenskar rannsóknir hafa verið framkvæmdar en ekki viðamiklar. Þeim ber þó saman um helstu áhrifaþætti íslenskrar þjóðmenningar. Tilgangur þessarar ritgerðar er að rannsaka áhrif þjóðmenningar á íslensk útrásarfyrirtæki og hverjir eru þá helstu áhrifaþættir hennar. Kenningar Hofstede, Trompenaars og Hampden-Turner liggja þessari skýrslu til grundvallar auk þess sem stuðst er við fræðilegar skýrslur og annað ritað efni. Meginniðurstöður, að mati höfundar, eru þær helstar að þjóðmenning skiptir máli þegar farið er í útrás. Sigrar og sorgir íslenskra útrásarfyrirtækja má rekja að hluta til íslenskrar þjóðmenningar og einkenna hennar. Niðurstöður skýrslunnar eru í stórum dráttum þær að hér á landi sé lítil valdafjarlægð, samskipti séu óformleg og stéttaskipting ekki mikil. Íslendingar hafa lágt óvissuþol og hræðast ekki breytingar eða óvæntar aðstæður. Karllæg viðmið eru ráðandi á kostnað mýkri gilda eins og umönnun og umhyggju. Hér á landi hefur einstaklingshyggja verið ráðandi á kostnað félagshyggju. Einfaldar og stuttar boðleiðir eru Íslendingum að skapi en þeir standa og falla með ákvörðunum sínum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2936
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2936

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir 1972-. Áhrif þjóðmenningar á útrás íslenskra fyrirtækja. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2936