Back to results

Bifröst University

Viðskiptavild : breytingar eftir innleiðingu IFRS

Abstract

dc:description.abstract

Alþjóðlegu reikningsskilastaðlarnir, á frummálinu nefndir International Financial Reporting Standards – IFRS, hafa haft miklar breytingar í för með sér fyrir reikningsskil fyrirtækja. Staðlar þessir eru yfirgripsmiklir og þykja flóknir á köflum en þykja þó nauðsynlegir þegar kemur að því að hafa reikningsskil fyrirtækja samanburðarhæf. Með síaukinni alþjóðavæðingu í viðskiptum er mikilvægt að til staðar sé eitt safn viðurkenndra og alþjóðlega samræmdra staðla. Í ritgerð þessari er fjallað um þrjá staðla IFRS og eiga þeir það sameiginlegt að tengjast allir viðskiptavild á einn eða annan hátt. Einn þeirra fjallar um óefnislegar eignir almennt og nefnist IAS – 38 Óefnislegar eignir, annar um virðisrýrnun eigna og nefnist sá IAS 36 – Virðisrýrnun eigna og sá þriðji um sameiningar fyrirtækja og ber hann nafnið IFRS 3 – Sameiningar fyrirtækja. Leitast er við að varpa ljósi á þær breytingar sem hafa orðið á meðhöndlun viðskiptavildar í reikningsskilum íslenskra fyrirtækja eftir innleiðingu IFRS ásamt því að velta upp þeirri spurningu sem hefur verið á vörum landsmanna undanfarið en sú spurning varðar hækkandi viðskiptavild. Hvaða helstu ástæður eru fyrir hækkun á viðskiptavild í ársreikningum íslenskra fyrirtækja á undanförnum árum?

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurborg V. Reynisdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2930
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2930

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurborg V. Reynisdóttir 1976-. Viðskiptavild : breytingar eftir innleiðingu IFRS. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2930