Bifröst University
Könnun á grundvelli þess að stofna fyrirtæki í ferðaþjónusturekstri : persónuleg nálgun að akstri ferðamanna innanlands
Abstract
dc:description.abstractMikið vatn hefur runnið til sjávar síðan fyrsta fyrirtækið sem sá um farþegaflutninga hér á landi var stofnað. Ferðamannastraumurinn til Íslands hefur aukist svo um munar síðustu ár og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Komufarþegar til landsins í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar í desember 2016 voru 178.973 talsins en þar af voru erlendir ferðamenn 124.780. Komufarþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2016 voru samtals 2.318.293, þar af erlendir ferðamenn 1.767.726. Þá voru skemmtiferðaskip til Reykjavíkur 2016 alls 114 með samtals 98.676 fyrir utan áhöfn sem taldist vera 43.806 manns svo samtals voru það 142.482 einstaklingar sem komu til landsins með þeim hætti. Í heildina voru það sem sagt yfir 1.910.000 manns sem höfðu viðdvöl á landinu okkar árið 2016. Þá eru ótaldir þeir farþegar sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar en meirihluti þeirra kemur á bílum sem nota á til ferðarinnar á Íslandi. Þá bætist við fjöldi millilandafluga í gegnum Reykjavíkurflugvöll en samtals voru 39.637 farþegar taldir þar árið 2016. Samanlagt má áætla að það hafi verið um 1.950.000.- erlendir farþegar sem höfðu viðdvöl á landinu árið 2016. Markmiðið með þessari ritgerð er að kanna grundvöll þess að stofna fyrirtæki í ferðaþjónusturekstri hér á landi. Ritgerðin er lögð fram sem viðskiptaáætlun og er ætlað að gefa innsýn í reksturinn og greiningu á umhverfi hans. Tilgangur viðskiptaáætlunarinnar er að varpa ljósi á hvort grundvöllur rekstrarins sé fyrir hendi. Fyrirtækið sem um ræðir ætlar að bjóða upp á ferðir fyrir litla hópa og einstaklinga sem koma erlendis frá til að upplifa Ísland á persónulegan og einstakan hátt. Fyrirtækið býður upp á ferðir á Snæfellsnes og í Borgarfjörð og leggur áherslu á að veita persónulega þjónustu. Samkvæmt skýrslu sem Íslandsbanki gaf út í mars 2017 spá þeir að 2,3 milljónir ferðamanna muni heimsækja landið í ár og er það um 30 prósent aukning frá því í fyrra. Það lítur því út fyrir að aukning ferðamanna til landsins haldi áfram og því er mjög áhugavert er að skoða hvort grundvöllur sé fyrir því að stofna fyrirtæki í ferðaþjónusturekstri sem myndi veita persónulega þjónustu. Í ritgerðinni er lögð fram fjárhagsáætlun þar sem birt eru tölulegar forsendur fyrir stofnun slíks fyrirtækis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Guðmundsdóttir 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29124
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29124